„Við erum að bjóða upp á ferðalag um heiminn. Þetta er í rauninni ódýrasta ævintýraferð sem þú getur farið í, bara umhverfis jörðina,“ segir Hrönn Marinósdóttir í Ísland í dag á Stöð 2 í gærkvöld en þar kynnti Sindri Sindrason sér hátíðina þar sem yfir 70 myndir verða sýndar. Hrönn fer yfir allskonar myndir sem eru til sýninga á RIFF að þessu sinni, alveg frá mynd um Múmínálfana yfir í svæsna hryllingsmynd. Einnig geta kvikmyndagestir séð heimildarmynd sem Sigurjón Sighvatsson sjálfur leikstýrir. Svo má sjá mynd sem ber nafnið Stelpugengið.
„Hún fjallar um unga stelpu sem verður alveg svakalega vinsæl samfélagsmiðlastjarna. Vinir hennar gjörbreytast og foreldrar hennar í rauninni hætta að vinna og fara reka stelpuna með einskonar fyrirtæki. Þetta er mynd sem vekur mann til umhugsunar um gildi samfélagsmiðla og við ætlum að vera með umræðu eftir þessa mynd.“
Hrönn segir að kvikmyndirnar séu frá 57 löndum í heildina. RIFF var upphaflega MBA verkefni Hrannar.
„Þetta er rosalegt ströggl. Það er vandamálið og það hefur verið mikil skerðing á opinberum framlögum til RIFF í ár, um þriðjungur. Helsta vandamálið er að við getum ekki séð hvað gerist á næsta ári. Það vantar velviljann hjá hinu opinbera. Mér finnst vanta meira samtal og mér finnst vanta að okkar starfsöryggi sé tryggt. Ég væri til í góðan kaffibolla með borgarstjóra og ráðherra og ég skal splæsa og ræða málin,“ segir Hrönn en sjá má innslagið í heild sinni hér að neðan.