Todd Boehly, nýr eigandi Chelsea, er strax kominn á fullt í leit að félögum til að festa kaup á eftir að hafa gengið frá kaupunum á Chelsea í sumar. Santos frá Brasilíu er sagt hafa hafnað tilraun hans til kaupa félagið og þá er Tom Glick, yfirmaður fjárfestinga hjá Chelsea, sagður vera að skoða möguleika í Belgíu og Portúgal.
Að eiga slíkt net félaga er sagt koma sér vel til að þróa leikmenn fyrir ensku félögin og þá geta þau laðað að sér unga og efnilega leikmenn innan heimalandanna.
City Group á fjögur félög í Evrópu, utan Manchester City; Girona á Spáni, Lommel í Belgíu, franska liðið Troyes og þá bættist Palermo á Ítalíu við í sumar. Þess utan á fjárfestingafélagið Yokohama Marinos í Japan, Sichuan Jiuniu í Kína, auk City-liðanna Melbourne City í Ástralíu, Montevideo City í Úrúgvæ, Mumbai City á Indlandi og New York City í Bandaríkjunum.
Manchester, Melbourne, Mumbai og New York City urðu öll landsmeistarar í sinni deild árið 2021.
FSG og Kroenke sterk vestanhafs
Stan Kroenke, eigandi Arsenal, er sagður skoða kaup á félögum í Brasilíu, Belgíu og Portúgal. Kroenke er víðamikill innan bandarískra íþrótta en hann á NFL-meistara Los Angeles Rams, sem unnu Ofurskálina í febrúar.
Hann á einnig Colorado Rapids í MLS-deildinni í fótbolta, Denver Nuggets í NBA-deildinni í körfubolta auk Colorado Avalanche í NHL-deildinni í íshokkí.
Fenway Sports Group, sem á Liverpool, á tvö stór lið í bandarísku íþróttunum. Stórliðið Boston Red Sox í MLB-deildinni í hafnabolta hefur verið í þeirra eigu um hríð sem og Pittsburgh Penguins í NHL. FSG seldi hins vegar stóran hlut í RedBird Capital í fyrra, en það félag keypti ítölsku meistarana AC Milan í ágúst og á einnig 85% hlut í Toulouse frá Frakklandi.
Útganga Bretlands úr Evrópusambandinu er sagt ýta á eftir félögum að byggja upp net sem þetta. Erfiðara reynist nú en áður fyrir erlenda leikmenn að fá atvinnuleyfi á Englandi og er þá hægt að byggja leikmenn upp hjá venslaliðunum til að auka líkur á leyfi síðar meir.