Hér má sjá tónlistarmyndbandið:
Á milli svefns og vöku
Samkvæmt Ásgeiri var Borderland síðasta lagið sem var valið inn á plötuna og var ferlið frekar fljótt og áreynslulaust.
„Ég var að leika mér í gömlu Memorymoog hljómborði og gerði loop-u af synthum og trommum sem ég samdi svo melódíur ofan á. Þegar ég var kominn með grunninn á laginu fékk ég föður minn til að skrifa nokkur orð fyrir textann.
Stuttu síðar sendir hann mér textann Á milli svefns og vöku sem fjallar um mann sem er milli svefns og vöku og dreymir um að hann sé á leið til paradísar að hitta elskhuga sinn.
Í einhvers konar ofskynjunar ástandi fer hann að heyra rödd hennar tala og syngja en hann vaknar alltaf áður en hann nær að teygja sig til hennar.
Slíkt ástand er gjarnan tengt við hækkandi sköpunargáfu.“
Heltekinn af hljóði
Einar Egilsson, leikstjóri myndbandsins, tengir söguþráðinn við persónulega reynslu.
„Sagan fjallar um mann sem er heltekinn af hljóði sem birtist í húsinu hans. Hann hefur verið andvaka dögum jafnvel vikum saman að reyna að taka upp sama hljóð. En ekkert gengur fyrr en hann sofnar í fyrsta skipti í langan tíma. Sjálfur er ég með tinnitus (suð í eyra) og þótt sagan fjalli ekki um tinnitus þá er ég sjálfur heltekinn af ákveðnu hljóði á ákveðnu frequency-i. Þaðan kom innblásturinn.“
Dýrmætt samstarf
Samstarfið hjá Einari og Ásgeiri gekk vel en þetta er ekki í fyrsta skipti sem þeir sameina krafta sína.
„Síðan lifnaði hugmyndin auðvitað einnig við út frá þessum gullfallega texta í laginu hans Ásgeirs. Við Ásgeir höfum unnið nokkrum sinnum saman og það er líka svo dýrmætt að hann treystir mér að gera mynd við hans mögnuðu tónlist,“ segir Einar að lokum.
Ásgeir er nú á tónleikaferðalagi um Evrópu og kemur fram í París annað kvöld. Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá ferðalaginu hingað til:






