Hátíðin mun eiga sér stað á nokkrum mismunandi stöðum í miðborginni og má þar meðal annars nefna Tjarnarbíó, Húrra, Fríkirkjuna í Reykjavík, Sirkus, Space Odyssey, Miðgarð og Mál og Menningar húsið.
Fjöldi listamanna fram á hátíðinni í ár og í fréttatilkynningu frá hátíðinni segir að ólíkir listamenn komi saman, allt frá tilraunakenndum listamönnum til þeirra sem eru í klassískari útfærslum.
Í hópi þeirra sem fram koma eru Fennesz, KMRU, Klara Lewis, Mara W. Horn, Mixmaster Morris, Eraldo, Bernocchi, Christopher Chaplin, Sóley, Úlfur, Kira Kira, Yagya, Stereo Hypnosis, Úlfur Eldjárn, Ingibjörg Turchi & Hróðmar Sigurðsson og Jónas Sen ásamt fleirum.

„Extreme Chill er hátíð sem setur ávallt markmiðin hærra með hverju ári og hefur nú verið haldin bæði í Berlín og víða um land. Hún hefur líka verið í samstarfi við ýmsar hátíðir bæði hérlendis og erlendis,“ segir í tilkynningunni.

Tónlist og myndlist mætast á listrænan hátt á hátíðinni en markmið hennar er að kynna íslenska og erlenda raftónlistarmenn og tengja saman ólík listform, hljóðheim raftónlistarinnar og hinn lifandi myndheim.
„Þetta er fjögurra daga tónlistarveisla þar sem íslenskir og erlendir listamenn með ólíkan bakgrunn á öllum aldri mætast í sköpun sinni undir áhrifum íslenskrar náttúru. Þetta verður leyndardómsfullt ferðalag um rafræna Reykjavík.“
Nánari upplýsingar má finna hér.