Flutti kókaín í fjórtán pakkningum innvortis til landsins Atli Ísleifsson skrifar 6. október 2022 12:43 Tollverðir á Keflavíkurflugvelli stöðvuðu manninn þegar hann kom til landsins með flugi frá München. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann um fimmtugt í fimm mánaða fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa reynt að smygla rúmlega 260 grömmum af kókaíni með flugi til landsins í ágúst síðastliðinn.
Í ákæru kemur fram að maðurinn hafi komið til landsins með flugi Lufthansa frá München í Þýskalandi þann 14. ágúst síðastliðinn. Hann hafi verið stöðvaður af tollvörðum á Keflavíkurflugvelli og fannst kókaínið í fjórtán pakkningum sem hann hafði falið innvortis. Maðurinn játaði sök í málinu, en í dómi segir að maðurinn hafi ekki áður orðið uppvís að refsiverðri háttsemi svo vitað sé. „Af fyrirliggjandi gögnum verður ekki ráðið að hann hafi verið eigandi nefndra fíkniefna eða tekið þátt í skipulagningu á kaupum og innflutningi þeirra til Íslands með öðrum hætti en þeim að samþykkja að flytja efnin til landsins gegn greiðslu,“ segir í dómnum. Dómari taldi fimm mánaða fangelsi vera hæfilega refsingu, en til frádráttar kemur gæsluvarðhald sem hann sætti frá 14. ágúst síðastliðinn. Manninum var jafnframt gert að greiða sakarkostnað, alls um 1,6 milljónir króna.
Dómsmál Keflavíkurflugvöllur Smygl Fíkniefnabrot Tollgæslan Mest lesið Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Erlent Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Veður Jólakindin Djásn á Stokkseyri Innlent Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Innlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Um helmingur farþega komst lífs af Erlent Fleiri fréttir Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Appelsínugular viðvaranir og jólaboð hjá Hjálpræðishernum Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Varað við ferðalögum víða um land Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Vonskuveður og þau sem eru á síðasta snúningi Fjúgandi hálka í kirkjugörðum Reykjavíkur Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Nóg að gera hjá slökkviliðinu í nótt Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Sjá meira