Ráðstefnan hefst klukkan tíu í Veröld, húsi Vigdísar, og á henni að ljúka klukkan fimm.
Það verða Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra sem opna ráðstefnuna í ár. Þórdís mun svo taka þátt í pallborðsumræðum um áhrif stríðsins í Úkraínu á frið í Evrópu.
Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni í ár eru: Thania Paffenholz, forstöðumaður Inclusive Peace, Ketevan Tsikhelashvili, sendiherra og fastafulltrúi Georgíu í ÖSE, Jayathma Wickramanayake, sendifulltrúi ungmenna hjá Sameinuðu þjóðunum, Hiba Qasas, forstöðumaður Principles for Peace Initiative hjá Interpeace, Louise Olsson, rannsóknastjóri hjá Peace Research Institute Oslo (PRIO), Jannie Lilja, forstöðumaður rannsókna á sviði friðar og þróunarsamvinnu hjá SIPRI, Kirsi Joenpolvi, sérfræðingur hjá friðaruppbyggingar skrifstofu Sameinuðu þjóðanna, Marsha Henry, dósent í kynjafræði við LSE, Jón Ólafsson, prófessor í menningarfræði og rússnesku við Háskóla Íslands, Rodrigo Mezú, fræðimaður við Air Force Academy í Kólumbíu, Niusha Khanmohammadi, sérfræðingur í friðar- og menningarmálum og listamaður og Julie Arnfred Bojesen, forstöðumaður The Ukrainian-Danish Youth House.
Horfa má á ráðstefnuna í spilaranum hér að ofan. Hún hefst klukkan tíu.
