Telst ekki eðlilegt í dag að beðið var í margar vikur með skýrslutökur í Óshlíðarmálinu Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 9. október 2022 14:20 Ljósmynd af bílnum í fjörunni undir Óshlíðarvegi. Haukur Sig./Ljósmyndasafnið Ísafirði Réttarlæknir hefur skilað skýrslu um niðurstöður krufningar á líki manns sem fórst í bílveltu í Óshlíð árið 1973. Jarðneskar leifar hans voru grafnar upp af lögreglu í maímánuði eftir að ósk um endurupptöku barst frá fjölskyldu hans.
Þetta staðfestir Birgir Jónasson settur lögreglustjóri á Vestfjörðum í samtali við fréttastofu en RÚV greindi frá málinu í hádegisfréttum. Hann segir engan vera með réttarstöðu sakbornings enda sé ekki um sakamála- heldur slysarannsókn að ræða. Þá hafi hvorki neinn verið yfirheyrður né skýrslur teknar. „Það fór fram rannsókn á sínum tíma, fyrir fimm áratugum síðan eða svo og þessi aðgerð að skoða málið nánar lýtur fyrst og fremst að dánaorsök viðkomandi. Hvort hann hafi látist af slysförum eða af einhverjum öðrum orsökum. Það eru í raun bara utanaðkomandi sérfræðingar sem geta metið það,“ segir Birgir. Þegar málið var til rannsóknar á sínum tíma liðu mánuðir frá því að slysið varð og þar til þau tvö, sem voru með Kristni Hauki Jóhannessyni, sem lést aðeins nítján ára, í bílnum þegar slysið varð, fóru í skýrslutöku hjá lögreglu. Er það eðlilegt að líði svona langur tími frá slysi þar til skýrslur eru teknar? „Þetta er ekki eðlilegt í dag en ég held að miðað við þann tíma og þjónustustig lögreglunnar á þeim tíma held ég að það hafi kannski bara verið eðlilegt. Við horfum á þetta allt öðrum augum í dag en þá. Ég held það verði að horfa á þetta þannig.“ Ákvörðun um framhald málsins muni að öllum líkindum liggja fyrir í vikunni. Hann segir þá að jarðneskar leifar Kristins hafi verið bornar aftur til grafar. Rúmir þrír mánuðir eru liðnir frá því að lögregla stóð að uppgreftri líkamsleifa Kristins en engar frekari upplýsingar hafa borist um rannsókn málsins síðan þá. Lögregla sagði í skriflegu svari sínu ekki tilefni til að svara einstökum spurningum fréttastofu eins og hvort rannsókn réttarlæknis á líkamsleifum Kristins væri lokið, hver staðan á rannsókninni er, hvort búið sé að taka skýrslur af vitnum, hvort einhver fari með réttarstöðu sakbornings, hvort lík Kristins Hauks hafi verið borið aftur til grafar og svo framvegis. Skýrslur ekki teknar af vitnum fyrr en mánuðum eftir slysið Vísir greindi frá því 31. maí síðastliðinn að skýrslur hafi ekki verið teknar af ökumanni og farþega í bílnum fyrr en tveimur og þremur mánuðum eftir slysið. Fram kemur í lögregluskýrslum um málið, sem fréttastofa hefur undir höndum, að Kristinn hafi farið á dansleik í Hnífsdal kvöldið áður og síðan í einkasamkvæmi á Ísafirði með þremur stúlkum. Upp úr klukkan fjögur um morguninn hafi þau farið úr samkvæminu, ásamt fjórðu stúlkunni, hitt fyrir leigubílstjóra, sem keyrði þau um Ísafjörð. Tvær stúlknanna hafi farið úr bílnum áður en haldið var til Bolungarvíkur þar sem ein stúlknanna bjó. Þegar hún hafi verið komin heim til sín hafi leigubílstjórinn haldið, með Kristinn og fjórðu stúlkuna, aftur til Ísafjarðar. Stúlkan sat í framsætinu en Kristinn Haukur lá í aftursætinu. Rykkur hafi komið á bílinn Höskuldur Guðmundsson, leigubílstjórinn fyrrverandi, sagði í samtali við fréttastofu 31. maí síðastliðinn að stúlkan hafi verið vinkona hans og hann hafi verið hættur að aka gegn gjaldi þetta kvöld þegar hann tók hópinn upp í bíl. Hann hafi aðeins ekið til Bolungarvíkur þar sem stúlkan sem þangað hafi þurft að komast hafi verið í vandræðum með að finna far. Kristinn Haukur hafi verið mjög drukkinn og fljótlega dáið áfengisdauða í aftursætinu. Fram kemur í lögregluskýrslum að við blindbeygju á Óshlíðarvegi hafi komið rykkur á bílinn og Höskuldur misst stjórn á honum áður en bíllinn valt þrjátíu metra niður í flæðarmálið. Bílstjórinn sagði í skýrslutöku hjá lögreglu 23. nóvember 1973 að áður en bíllinn fór út af veginum hafi vinstra afturhjólið „neglt sig fast í bremsu“ og við það hafi hann misst stjórn á bílnum. Við rannsókn málsins var bifreiðaeftirlitsmaður fenginn til að skoða bílinn og sagði hann að stýrisliður hafi verið rofinn. Hann hafi ekkert fundið að hemlum bifreiðarinnar. Líkið farið að stirðna þegar lögregla kom á slysstað Höskuldur segir í samtali við fréttastofu að hann hafi ekið hægt um Óshlíðarveginn því aðstæður hafi ekki, eins og alltaf í Óshlíð, verið góðar. Þegar hann hafi ýtt lauslega á bremsuna hafi annað hjólið á bílnum læst sig og bíllinn farið út af. Hann segir það oft hafa gerst í amerískum bílum, en bíllinn var úr verksmiðju Ford 1967. Bíllinn valt niður í flæðarmálið en lenti á hjólunum og komust bæði ökumaðurinn og stúlkan, sem hvorugt var í bílbelti, út úr bílnum af sjálfsdáðum. Þau sögðust í skýrslutöku hjá lögreglu hafa fundið vasaljós í bílnum og leitað Kristins stutlega án árangurs. Þau hafi síðan gengið inn í Hnífsdal, um klukkustundar leið, þar sem þau gátu gert lögreglu viðvart. Einn lögreglumaður var sendur á slysstað þar sem hann fann Kristin látinn í hlíðinni miðri, um fimmtán metra fyrir ofan staðinn þar sem bíllinn hafði stöðvast. Lögreglumaðurinn segir í skýrslu að ljóst hafi verið að Kristinn væri látinn, en storknað blóð hafi verið í munni hans og hann hafi haft mikið sár á höfði. Líkaminn hafi þar að auki verið farinn að stirðna. Læknanemi, sem hafði verið kallaður til, úrskurðaði Kristinn látinn á staðnum.
Banaslys á Óshlíðarvegi 1973 Lögreglumál Ísafjarðarbær Bolungarvík Tengdar fréttir Engin svör fást um rannsókn Óshlíðarmálsins frá 1973 Lögreglan á Vestfjörðum segir ekki tímabært að svara einstökum spurningum eða bæta við upplýsingum umfram þær sem fram komu í lok maí um rannsókn embættisins á bílslysi sem varð á Óshlíðarvegi í september 1973. 7. september 2022 14:01 Leigubílstjórinn undrast upptöku fimmtíu ára gamals máls Skýrslur voru ekki teknar af ökumanni og farþega í bíl, sem valt á Óshlíðarvegi árið 1973 með þeim afleiðingum að annar farþeginn lést, fyrr en tveimur og þremur mánuðum eftir slysið. Þetta kemur fram í gögnum lögreglu sem fréttastofa hefur undir höndum. Bílstjórinn segir það ekki standast, ekki hafi liðið nema nokkrir dagar þar til skýrsla hafi verið tekin af honum. 31. maí 2022 12:00 Grófu upp líkamsleifar til að skoða fimmtíu ára mál Líkamsleifar sem Lögreglan á Vestfjörðum gróf upp fyrir helgi eru af manni sem mun hafa farist í bílslysi á Óshlíðarvegi árið 1973. Hinn nítján ára gamli Kristinn Haukur Jóhannesson fannst látinn við bíl sem átti að hafa oltið niður af veginum en verið er að rannsaka hvort Kristinn hafi mögulega dáið með öðrum hætti. 30. maí 2022 23:13 Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Líkfundur við Austurbæjarskóla Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Erlent Fleiri fréttir Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni „Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu“ Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Í gæsluvarðhaldi en segist einungis hafa verið bílstjóri Billy Long kominn á klakann Helga Lára Haarde aðstoðar Hildi Fólksfjöldi á Hellissandi tífaldast Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Sjá meira
Engin svör fást um rannsókn Óshlíðarmálsins frá 1973 Lögreglan á Vestfjörðum segir ekki tímabært að svara einstökum spurningum eða bæta við upplýsingum umfram þær sem fram komu í lok maí um rannsókn embættisins á bílslysi sem varð á Óshlíðarvegi í september 1973. 7. september 2022 14:01
Leigubílstjórinn undrast upptöku fimmtíu ára gamals máls Skýrslur voru ekki teknar af ökumanni og farþega í bíl, sem valt á Óshlíðarvegi árið 1973 með þeim afleiðingum að annar farþeginn lést, fyrr en tveimur og þremur mánuðum eftir slysið. Þetta kemur fram í gögnum lögreglu sem fréttastofa hefur undir höndum. Bílstjórinn segir það ekki standast, ekki hafi liðið nema nokkrir dagar þar til skýrsla hafi verið tekin af honum. 31. maí 2022 12:00
Grófu upp líkamsleifar til að skoða fimmtíu ára mál Líkamsleifar sem Lögreglan á Vestfjörðum gróf upp fyrir helgi eru af manni sem mun hafa farist í bílslysi á Óshlíðarvegi árið 1973. Hinn nítján ára gamli Kristinn Haukur Jóhannesson fannst látinn við bíl sem átti að hafa oltið niður af veginum en verið er að rannsaka hvort Kristinn hafi mögulega dáið með öðrum hætti. 30. maí 2022 23:13