Bolungarvík

Bolungarvík

Mannfjöldi: 995 (2025). Flatarmál: 108 ferkílómetrar.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Mann­fjöldinn á Vest­fjörðum marg­faldast vegna almyrkvans

Fjöldi fólks á Vestfjörðum margfaldast í dag þegar ferðamenn streyma á svæðið til að fylgjast með almyrkvanum. Mest er álagið á sunnanverðum fjörðunum en Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vestfjörðum, segir viðbúnað ganga samkvæmt áætlun.

Innlent
Fréttamynd

Fjór­falt fleiri lög­reglu­menn vakta Vest­firði

Á venjulegum miðvikudegi í ágúst væru sex lögreglumenn á vakt á öllum Vestfjörðum. Sem viðbragð við almyrkvanum 12. ágúst verður lögregluþjónum á vakt fjölgað um sextán sem er nánast fjórfalt á við venjulegan dag. Umferðarstýring verður víða og verður að hámarki þrjú þúsund bílum leyft að keyra vestur að Látrabjargi.

Innlent
Fréttamynd

Brúin yfir Djúpa­fjörð boðin út

Vegagerðin hefur boðið út nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 4,6 kílómetra kafla yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Bygging 210 metra langrar bogabrúar yfir Djúpafjörð er innifalin í verkinu. Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2028.

Innlent
Fréttamynd

Samningur um Ísa­fjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair

Ráðamenn Icelandair hafa fallið frá þeirri ákvörðun að hætta rekstri styttri Dash 8-innanlandsvéla sinna eftir að samningar tókust við Vegagerðina um framhald Ísafjarðarflugs. Samið var um nærri helmings lækkun frá upphaflegu tilboði Icelandair en á móti verður dregið úr tíðni flugferða.

Innlent
Fréttamynd

Varnarsigur segir for­maður bæjar­ráðs Ísa­fjarðar

Vegagerðin hefur samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar gegn 1,7 milljarða króna niðurgreiðslu næstu fjögur ár. Það er ríflega helmings lækkun frá tilboði Icelandair, sem var upp á 3,5 milljarða króna, en á móti kemur að flugferðum er fækkað um 28 prósent. Formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar kveðst líta á þetta sem varnarsigur.

Innlent
Fréttamynd

Fram­leiðslu­stöðvunin högg fyrir fyrir­tækið og við­skipta­vini

Framleiðsluvélin sem notuð er til að búa til hafravörur Veru Örnudóttur bilaði nýlega og ekki verður hægt að framleiða meira af veganskyrinu eða öðrum hafravörum fyrr en í fyrsta lagi í maí. Arna María Hálfdánardóttir, markaðsstjóri fyrirtækisins, segir það högg og vont fyrir bæði fyrirtækið og viðskiptavini.

Neytendur
Fréttamynd

Nýtt fram­boð í Bolungar­vík

Nýtt framboð hefur verið boðað til sveitarstjórnar í Bolungarvík. Framboðið nefnist Betri Bolungarvík og hefur stofnfundur verið boðaður á bæjarkránni Verbúðinni næstkomandi fimmtudagskvöld.

Innlent
Fréttamynd

Segir tugi þúsunda sendingarkostnað vera dulinn landsbyggðarskatt

Íbúi í Bolungarvík pantaði dúkkuhús úr leikfangaverslun í Reykjavík en fyrir sendinguna átti hann að greiða rúmar tuttugu þúsund krónur. Hann segir um duldan landsbyggðaskatt að ræða þar sem íbúi á höfuðborgarsvæðinu þyrfti einungis að greiða um sex þúsund krónur í sendingargjald.

Innlent
Fréttamynd

Gat ekki sannað að verk­stæðið tjónaði vélina

Héraðsdómur Vestfjarða hefur sýknað bátaverkstæði í Bolungarvík af kröfum fiskiútgerðarinnar Glifsu, sem tókst ekki að sanna að verkstæðið hafi valdið tjóni í bátsvél útgerðarinnar. Margt annað gæti hafa átt sinn þátt í biluninni, til dæmis að vélin væri sautján ára gömul.

Innlent