Innanlandsvélar Icelandair gætu verið knúnar vetni eftir þrjú ár Kristján Már Unnarsson skrifar 13. október 2022 22:23 Flugvélar Icelandair í innanlandsfluginu eru af gerðinni Dash 8. Vilhelm Gunnarsson Tækni til að umbreyta olíuknúnum innanlandsflota Icelandair í vetnisknúnar flugvélar verður tilbúin eftir þrjú ár. Þetta kom fram á fundi um orkuskipti í flugi á Reykjavik Edition hótelinu í dag í tengslum við Hringborð norðurslóða.
Icelandair, Isavia, Landsvirkjun og Samtök ferðaþjónustunnar stóðu fyrir málstofunni, sem fjallað var um í fréttum Stöðvar 2. Meðal framsögumanna var fulltrúi bandaríska fyrirtækisins Universal Hydrogen, sem vinnur að tiltölulega fljótlegri leið til orkuskipta. Í stað þess að þróa og smíða nýja flugvél frá grunni hyggst það umbreyta flugvélum sem þegar eru í notkun. Rod Williams frá Universal Hydrogen lýsir því hvernig fyrirtækið hyggst umbreyta skrúfuþotum svo þær brenni vetni í stað jarðefnaeldsneytis.Bjarni Einarsson „Við erum í fyrsta lagi að þróa endurbótapakka fyrir skrúfuþotur sem eru í notkun núna, eins og Dash-8 vélarnar sem Icelandair notar innanlands. Þessi endurbótapakki gerir okkur kleift að breyta flugvélum þannig að þær séu knúnar með vetni í staðinn fyrir jarðefnaeldsneyti eins og núna,“ segir Rod Williams, viðskiptastjóri Universal Hydrogen. Jafnframt gengur hugmyndin út á það að í stað þess að dæla vetni á eldsneytisgeyma í flugvélinni verður skipt um vetnishylki eftir hverja flugferð. Svona hyggst bandaríska fyrirtækið Universal Hydrogen koma vetnishylkjum fyrir í afturhluta Dash 8-flugvéla.Universal Hydrogen „Hylkin eru einfaldlega fjarlægð og ný hylki sett í staðinn þegar á að fara í annað flug,“ segir Rod Williams. Hann telur Ísland ákjósanlegan vettvang fyrir slík orkuskipti. „Á heimsvísu held ég að Ísland sé einn af eftirsóknarverðustu stöðunum vegna mikils framboðs á grænu rafmagni og grænum orkugjöfum í landinu.“ Eftir lendingu eru ný fullhlaðin vetnishylki sett í vélina í stað þeirra sem búið er að nota.Universal Hydrogen Og það gæti verið stutt í byltinguna með þessari aðferð. „Við áætlum að þróun flugvélarinnar verði lokið og hún verði vottuð árið 2025 og þá getum við afhent fyrstu flugvélina innan þess tímaramma,“ segir talsmaður Universal Hydrogen. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Fréttir af flugi Orkuskipti Orkumál Icelandair Hringborð norðurslóða Loftslagsmál Tengdar fréttir Spáð að þessi verði fyrsta rafknúna farþegaflugvélin Þegar rafmagnsflugvélin Alice hóf sig til flugs fyrir tólf dögum frá Grant County-alþjóðaflugvellinum í Washington-ríki í Bandaríkjunum sagði CNN-fréttastofan að hún væri fyrsta farþegaflugvél heims, sem alfarið væri rafknúin, til að taka flugið. Þetta fyrsta reynsluflug hennar varði í átta mínútur og fór hún í 3.500 feta hæð. 9. október 2022 14:14 Viljayfirlýsing Icelandair gerir ráð fyrir fimm rafknúnum flugvélum Icelandair gerir ráð fyrir að fá fimm rafmagnsflugvélar í innanlandsflugið í viljayfirlýsingu, sem félagið skrifaði undir í síðustu viku. Ráðamenn Icelandair telja raunhæft að orkuskiptin í farþegafluginu hefjist fyrir lok þessa áratugar. 22. september 2022 22:22 Ná samkomulagi um fjárfestingu í vetnisframleiðslu fyrir um 20 milljarða HS Orka og alþjóðlega orkufyrirtækið Hydrogen Ventures Limited (H2V) hafa náð samkomulagi um orkuverð og aðra skilmála vegna fyrirhugaðrar vetnisframleiðslu á Íslandi sem verður nýtt við framleiðslu metanóls í Auðlindagarði HS Orku. Áætluð fjárfesting er um 150 milljónir evra, jafnvirði um 21 milljarður íslenskra króna. 29. ágúst 2022 20:41 Flugvélin sem gæti orðið sú fyrsta rafknúna hjá Icelandair Ráðamenn Icelandair telja að vetnis- og rafmagnsflugvélar geti orðið raunhæfur kostur í innanlandsfluginu á fáum árum og hafa skrifað undir tvær viljayfirlýsingar við erlend fyrirtæki með það að markmiði að verða á meðal fyrstu flugfélaga heims til að gera innanlandsflug kolefnislaust. 14. júlí 2021 22:44 Kynna rafknúnar vetnisvélar sem leið til orkuskipta í flugi Dash 8-flugvélum, eins og þeim sem notaðar eru hérlendis í innanlandsfluginu, verður hægt að fljúga á mengunarlausu vetni eftir fjögur ár í stað flugvélabensíns, nái áform bandarísks fyrirtækis fram að ganga. Flugvélaframleiðendur horfa nú til vetnis sem milliorkugjafa fyrir rafknúnar flugvélar. 12. október 2020 22:12 Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira
Spáð að þessi verði fyrsta rafknúna farþegaflugvélin Þegar rafmagnsflugvélin Alice hóf sig til flugs fyrir tólf dögum frá Grant County-alþjóðaflugvellinum í Washington-ríki í Bandaríkjunum sagði CNN-fréttastofan að hún væri fyrsta farþegaflugvél heims, sem alfarið væri rafknúin, til að taka flugið. Þetta fyrsta reynsluflug hennar varði í átta mínútur og fór hún í 3.500 feta hæð. 9. október 2022 14:14
Viljayfirlýsing Icelandair gerir ráð fyrir fimm rafknúnum flugvélum Icelandair gerir ráð fyrir að fá fimm rafmagnsflugvélar í innanlandsflugið í viljayfirlýsingu, sem félagið skrifaði undir í síðustu viku. Ráðamenn Icelandair telja raunhæft að orkuskiptin í farþegafluginu hefjist fyrir lok þessa áratugar. 22. september 2022 22:22
Ná samkomulagi um fjárfestingu í vetnisframleiðslu fyrir um 20 milljarða HS Orka og alþjóðlega orkufyrirtækið Hydrogen Ventures Limited (H2V) hafa náð samkomulagi um orkuverð og aðra skilmála vegna fyrirhugaðrar vetnisframleiðslu á Íslandi sem verður nýtt við framleiðslu metanóls í Auðlindagarði HS Orku. Áætluð fjárfesting er um 150 milljónir evra, jafnvirði um 21 milljarður íslenskra króna. 29. ágúst 2022 20:41
Flugvélin sem gæti orðið sú fyrsta rafknúna hjá Icelandair Ráðamenn Icelandair telja að vetnis- og rafmagnsflugvélar geti orðið raunhæfur kostur í innanlandsfluginu á fáum árum og hafa skrifað undir tvær viljayfirlýsingar við erlend fyrirtæki með það að markmiði að verða á meðal fyrstu flugfélaga heims til að gera innanlandsflug kolefnislaust. 14. júlí 2021 22:44
Kynna rafknúnar vetnisvélar sem leið til orkuskipta í flugi Dash 8-flugvélum, eins og þeim sem notaðar eru hérlendis í innanlandsfluginu, verður hægt að fljúga á mengunarlausu vetni eftir fjögur ár í stað flugvélabensíns, nái áform bandarísks fyrirtækis fram að ganga. Flugvélaframleiðendur horfa nú til vetnis sem milliorkugjafa fyrir rafknúnar flugvélar. 12. október 2020 22:12