Æsilegir ástarfundir og spælt egg í plastpoka Elísabet Hanna skrifar 18. október 2022 11:30 Þær sextán konur sem komu að útgáfu bókarinnar. Aðsend „Sextán manneskjur hafa náttúrulega sextán skoðanir, ekki alltaf þær sömu,“ segir Berglind Erna Tryggvadóttir í samtali við Vísi. Berglind er ein þeirra sextán kvenna sem gáfu saman út bókina Takk fyrir komuna.
Bókin er afurð námskeiðs í Háskóla Íslands sem hópurinn sat síðasta vor. Huldar Breiðfjörð og Einar Kári Jóhannsson voru leiðbeinendur námskeiðsins. Þar sameinuðust tíu nemendur út meistaranámi í ritlist og sex nemendur úr ritstjórnar- og útgáfunámi. Útgáfuhús Unu gaf út bókina en Margrét Weisshappel hannaði kápuna og braut hana um. Blaðamaður heyrði í Berglindi Ernu, einum af höfundum bókarinnar, og fékk að heyra af ferlinu. Hvernig er að vinna sextán saman að bók?Það hefur verið skrautlegt ferli og mjög skemmtilegt. Ákvarðanataka varðandi hitt og þetta sem að kom útgáfuferlinu var kannski aðeins flóknari en gengur og gerist. Sextán manneskjur hafa náttúrulega sextán skoðanir, ekki alltaf þær sömu, svo það var mikið farið yfir málin og rætt fram og til baka til að komast að niðurstöðum varðandi eitt og annað. Þegar sneri að hlutum eins og yfirlestri og hugmyndavinnu þá var það þó frábært að hafa svona breiðan og vel mannaðan hóp og held ég að það skili sér í fjölbreyttum og sérstaklega áhugaverðum sögum. Berglind Erna Tryggvadóttir, Birgitta Björk Bergsdóttir, Birna Stefánsdóttir, Brynhildur, Yrsa Valkyrja, Heiða Vigdís Sigfúsdóttir, Hildur Selma Sigbertsdóttir, Hrafnhildur Rafnsdóttir, Marta María Jónsdóttir, Sunneva Kristín Sigurðardóttir, Þórunn Rakel Gylfadóttir, Anna Lára Árnadóttir, Anna María Björnsdóttir, Bergrún Adda Pálsdóttir, Diljá Þorbjargardóttir, Elísa Schram og Helga Björg Arnarsdóttir.Aðsend Hvernig er hún uppbyggð?Í bókinni er að finna fjöldann allan af sögum og ljóðum og meira að segja nokkrar myndir. Sögurnar eru sumar langar og aðrar stuttar, einhverjar jafnvel örstuttar. Í sumum sagnanna eru ljóð og einhverjum persónum má sjá bregða fyrir í fleiri en einni sögu, ef vel er að gáð. Bókin hefst á lokun Hótel Sögu og endar á aldamótasögu. Þar á milli er síðan að finna allt milli himins og jarðar. Hvaðan kom þemað?Í byrjun námskeiðsins vorum við vissar um að við vildum hafa eitthvað sterkt þema sem myndi binda bókina alla saman. Upp komu hugmyndir eins og IKEA, vampírur eða einhver ákveðinn tími dags en að lokum horfðum við út um gluggann, á þetta glæsilega hús sem Hótel Saga er, og sáum strax hvað það voru miklir möguleikar þar. Hótel er eins og lítill heimur, þar sem fólk kemur hvaðanæva að úr heiminum, til að búa um stund. Sumir hafa ákveðið erindi en aðrir eru óvissir um hvað þeir séu að gera á þessum nýja stað. Einhverjir hengja fötin sín upp í skápnum um leið og þeir koma inn á herbergið en aðrir opna varla töskuna. Sumir fara strax í sturtu, aðrir láta renna í bað rétt eftir miðnætti og enn aðrir þola ekki baðherbergi á hótelherbergjum og forðast þau í lengstu lög. Bókin er komin út.Aðsend Tilfinningar eru bældar eða brjótast fram, kannski ertu að flýja eitthvað eða finna eitthvað. Hótel færa mann í nýjan heim og okkur fannst það kannski sérstaklega viðeigandi eftir að hafa verið svo að segja föst á sama staðnum í tvö ár. Það eru nefnilega svo margt sem hægt að er vinna með út frá þemanu hótelsögur. Við hverju geta lesendur búist?Lesendur geta búist við öllum skalanum; æsilegum ástarfundum, foreldrafundum, starfsmannadrama, draugasögum og tinderævintýrum. Tár, flugeldar, fjölskylduerjur, spælt egg í plastpoka og margt fleira sem lestur þessarar bókar býður upp. Svo auðvitað hlaðborð og glæstar veitingar, því má ekki gleyma. Þetta er svona bók sem er gott að glugga í þegar mann langar í annan heim, út í heim, en líka þegar mann langar bara heim. Hvað er framundan hjá ykkur?Leiðir okkar allra liggja í sitthvora áttina, þó við munum eflaust leita hver til annarrar í framtíðinni. Ritstjórnarnemarnir eru margir hverjir farnir að vinna á fréttamiðlum eða hjá bókaforlögum en við rithöfundarnir snúum okkur bara aftur að skrifum. Einhverjar okkar eru nýbúnar að gefa út bækur og aðrar eru að vinna í handritum að skáldsögum og smásagnasöfnum.
Bókmenntir Tengdar fréttir „Þá var ekkert annað í stöðunni en að finna sér einhvern tilgang í lífinu“ Rithöfundurinn Rebekka Sif Stefánsdóttir hefur starfað sem söngkona og söngkennari frá því að hún var tvítug. Í ár er hún að gefa út hvorki meira né minna en tvær skáldsögur með þriggja mánaða millibili. Hún fann sinn tilgang í skrifunum þegar Covid faraldurinn skall á. 6. júlí 2022 11:01 Stökkið: „Eins og er bý ég með einhverjum tveim gaurum, held ég“ Heiða Vigdís Sigfúsdóttir er rithöfundur, ritlistarnemi og bloggari. Hún gaf nýverið út sína fyrstu skáldsögu, Getnaður, hjá Forlaginu. Í beinu framhaldi af útgáfunni flutti hún af landi brott, beint til Buenos Aires í Argentínu. 19. september 2022 07:01 Mest lesið „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ Lífið Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Lífið Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Gagnrýni Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður Lífið Hvað veistu um… One Direction? Lífið „Hún er í hljóðverinu núna“ Lífið Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Lífið Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit Lífið Hvað er í gangi á Svalbarða? Lífið „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Tónlist Fleiri fréttir Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ „Hún er í hljóðverinu núna“ Hvað veistu um… One Direction? Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Hvað er í gangi á Svalbarða? Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Sonur Mari og Njarðar fæddur Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Sjá meira
„Þá var ekkert annað í stöðunni en að finna sér einhvern tilgang í lífinu“ Rithöfundurinn Rebekka Sif Stefánsdóttir hefur starfað sem söngkona og söngkennari frá því að hún var tvítug. Í ár er hún að gefa út hvorki meira né minna en tvær skáldsögur með þriggja mánaða millibili. Hún fann sinn tilgang í skrifunum þegar Covid faraldurinn skall á. 6. júlí 2022 11:01
Stökkið: „Eins og er bý ég með einhverjum tveim gaurum, held ég“ Heiða Vigdís Sigfúsdóttir er rithöfundur, ritlistarnemi og bloggari. Hún gaf nýverið út sína fyrstu skáldsögu, Getnaður, hjá Forlaginu. Í beinu framhaldi af útgáfunni flutti hún af landi brott, beint til Buenos Aires í Argentínu. 19. september 2022 07:01