„Sem foreldrar er það ótrúlega leiðinlegt að heyra að fyrrverandi barnfóstra tveggja ungra barna okkar myndi taka þá ákvörðun að koma með svona rangar og ljótar ásakanir á okkur opinberlega,“ sögðu þau. Einnig vonast þau til þess að hún hætti að áreita sig og fjölskyldu þeirra. Saman eiga Jason og Olivia fimm ára stúlku og átta ára dreng.
Fór í nafnlaust viðtal
Barnfóstran, sem kaus að koma ekki fram undir nafni, fór í viðtal til DailyMail þar sem hún lýsti erfiðu ástandi á heimili fyrrum parsins í kringum sambandsslitin, sem hún segir hafa átt sér stað í kjölfar framhjáhalds Oliviu með söngvaranum Harry Styles.
Hún segir Oliviu hafa eytt sífellt minni tíma á heimilinu og hafi að lokum flutt á hótel en ástæðuna sem Olivia á að hafa gefið upp fyrir flutningunum var Covid. Þá segir hún Jason hafa búist við henni aftur heim. Skömmu síðar á hún að hafa komið á heimilið og sagt honum upp.
Sá skilaboð
Samkvæmt henni komst Jason að framhjáhaldi Oliviu með Harry Styles í gegnum skilaboð í Apple úri leikstjórans sem hún gleymdi heima. Harry kom inn sem leikari í kvikmyndinni Don't Worry Darling, sem Olivia leikstýrði, eftir að Shia Labeouf sagði sig frá myndinni.
Í kjölfarið segir hún Jason hafa verið í ástarsorg, bannað henni að spila lög með Harry og drukkið áfengi. Hann á einnig að hafa sagt barnfóstrunni að Olivia hafi kysst söngvarann í matarboði fyrir aðstandendur myndarinnar Don't Worry Darling.
Sjálf hefur Olivia margsinnis sagt að sambandi hennar og Jason hafi verið lokið áður en hún byrjaði að hitta söngvarann.
Ósáttur með salat
Hin ónefnda barnfóstra rifjar einnig upp atvik þegar Jason á að hafa verið ósáttur þegar Oliviu var að búa til salat fyrir Harry í eldhúsinu þeirra, með sérstöku salatdressingunni sinni.
Hann hafi hlaupið út og lagst undir bílinn hennar til þess að hindra að hún gæti keyrt á brott að hitta söngvarann. Þá á Olivia að hafa sagt að hún væri hrædd við Jason.
Lenti á milli
Í viðtalinu segist barnfóstran hafa lent á milli parsins í samskiptum og verið í óþægilegri aðstöðu og birti skjáskot af samskiptum sínum við Oliviu og Jason því til stuðnings. Í dag segist hún enn vorkenna Jason, sem hafi virkilega hafa reynt að bjarga sambandinu, en segist vera reið Oliviu fyrir að eyðileggja fjölskylduna.

Hún segir Oliviu enn hafa verið að senda Jason skilaboð um að hún elskaði hann skömmu áður en hún sást leiða Harry opinberlega. Einnig segir hún hana hafa ítrekað logið því að vera ekki með símasamband til þess að hringja í börnin sín þegar hún var í raun með söngvaranum.
Starfslok
Undir lok janúar segist hún hafa tilkynnt Jason að hún vildi hætta hjá þeim vegna aðstæðnanna. Hún segist hafa boðist til þess að starfa hjá þeim í hálft ár á meðan þau væru að ráða inn staðgengil.
Jason segir hún þó hafa rekið sig kvöld eitt, þann 1. febrúar. Hann hafi verið drukkinn og að Olivia hafi sagt honum frá skilaboðum sem barnfóstran sendi á hana. Hún segir að sér hafi verið hent fyrirvaralaust út, eins og rusli. Fyrrum parið segir hana hafa sagt upp starfinu og vonast til þess að hún láti þau vera í framtíðinni.