Samkvæmt fréttum frá Kóreu sigldi norðurkóreskt skip inn á það sem kallast nyrðri mörkin klukkan 3:42 að staðartíma í nótt. Skipið er sagt hafa snúið hratt aftur í norðurátt eftir að suðurkóreski herinn skaut viðvörunarskotum í átt að skipinu.
Norðurkóreski herinn heldur því fram að suðurkóreskt herskip hafi ráðist inn fyrir landamærin nokkrum mínútum síðar og þá hafi herinn skotið tíu viðvörunarskotum í átt að skipinu. Landamærin á sjó úti hafa verið mikill suðupunktur að undanförnu og ríkin tvo tekist þar á nokkrum sinnum á undanförnum árum.
Þá hefur spenna aukist gífurlega undanfarnar vikur. Norðrið hefur notað svæðið til eldflauga- og stórskotaliðsæfinga sem hafa vakið um áhyggjur meðal Suður-Kóreu og Japans.
Yfrivöld í Pyongyang í norðrinu hafa þá fjölgað heræfingum undanfarið og yfirvöld í Suður-Kóreu og Bandaríkjunum hafa varað við því að Kim Jong-un, leiðtogi norðursins, ætli að fyrirskipa sjöundu kjarnorkutilraun landsins.