Fjórir litir og nýtt lyklaborð
iPad 10 kemur í fjórum hressandi litum: klassískum silfur, gulum, bleikum og bláum. Skelin er alveg endurhönnuð og er loksins kominn í mjúku hornin sem ríkja í hönnum Apple núna. iPad 10 fær nýtt lyklaborð smellist á með seglum sem kemur með snertimús og aðgerðartökkum efst. Magic Keyboard Folio lyklaborðið kemur einnig með baki með stillanlegum halla. iPad 10 styður fyrstu kynslóð af Apple Pencil.

iPad Pro með M2 örgjörva
iPad Pro 11” og 12,9” spjaldtölvurnar fá líka ást og athygli: öflugri Apple M2 örgjörva, nýja svif-virkni fyrir Apple penna, ProRes hröðunarkjarna fyrir myndvinnslu, 5G farnet og stuðning við WiFi 6 þráðlaus net. iPad Pro eru nú sjálfbærari og nota endurnýtt gull að öllu leyti, ásamt því að nota endurnýtt ál, tin og önnur sjaldgæf jarðefni.

Apple penninn getur nú svifið yfir skjáinn og er numinn í allt að 12 mm fjarlægð. Öpp geta nýtt sér þann eiginleika á ýmsa máta: teikniforrit eins og ProCreate getur forsýnt þér það á að teikna eða sýnt þér stærð bursta áður hann er notaður.

Miklu betri stuðningur við skjái og hraðari fjölverkun
iPadOS er að fá stóra uppfærslu í haust sem iPad Pro ná að nýta sér vel. Þá verður miklu þægilegra að tengjast skjám með Thunderbolt4 tenginu og nota utanáliggjandi skjá eins og fólk þekkir af MacOS. Stage Manager eykur hraða fjölverkunar með svokölluðum sviðum, sem eru safn af allt að fjórum öppum sem þú getur raðað upp að þínum hætti á iPad skjánum eða safn af allt að átta öppum á utanáliggjandi skjá. Sviðin geta verið allt að fjögur og eru staðsett vinstra megin á skjánum.

Nýtt Apple TV með HDR10+ stuðning
Apple TV, sem er einn einn vinsælasti myndlykill Íslands, fær nýjan A15 Bionic örgjörva og HDR10+ stuðning sem gerir myndefni bjartara og meira lifandi. Siri fjarstýringin fær USB-C hleðslutengi í stað Lightning. Tvær útgáfur eru í boði: 64GB án nettengis og 128GB með nettengi og Thread stuðningi fyrir snjallheimilið.
