Hagkerfið viðkvæmara fyrir verðsveiflum sjávarafurða en áls
![Hátt verð sjávarafurða skiptir sköpum við að tryggja eðlilegan viðskiptajöfnuð um þessar mundir.](https://www.visir.is/i/26C82BC7DF70743BFA26AA1D223884103F442556A448171001284B7761CFA362_713x0.jpg)
Hátt afurðaverð sjávarfangs á fyrstu níu mánuðum ársins tryggir að viðskiptajöfnuður þjóðarbúsins hefur haldist í horfinu. Verðþróun á þorski skiptir höfuðmáli fyrir útflutningstekjur Íslands og því gæti skörp, efnahagsleg niðursveifla í Bretlandi haft slæm áhrif á viðskiptajöfnuð Íslands. Hagkerfið er orðið minna viðkvæmt fyrir sveiflum í álverði en áður var.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/6D17AA36171FB25A58C7A6219153C952E2DF035FCD87357EA1B60D72A8CA9B33_308x200.jpg)
Sterkur Bandaríkjadalur setur þrýsting á afurðaverð til Evrópu
Minnkandi kaupmáttur í Evrópu samfara styrkingu Bandaríkjadalsins hefur haft nokkur áhrif á markaði fyrir sjávarafurðir, að sögn viðmælenda Innherja. Vöruútflutningur Íslands í Bandaríkjadal er töluvert veigameiri en í evrum, þrátt fyrir að stór hluti kaupenda sé staðsettur í Evrópu.
![](https://www.visir.is/i/2BB0E41F12C616FC77CE6C998D2043F1CADA27125113ED756F02DC8AEF45A513_308x200.jpg)
Þróun hrávöruverðs varpar ljósi á mikilvægi raforkuframleiðslu á Íslandi
Stórkostlegar hækkanir á hrávöruverði eru áminning um mikilvægi raforkuframleiðslu hér á landi og þær varpa jafnframt ljósi á það hversu mikill ávinningur felst í því að framleiða íslenskt eldsneyti sem knýr farartæki. Þetta segir Ketill Sigurjónsson, sérfræðingur í orkumálum og framkvæmdastjóri vindorkufyrirtækisins Zephyr Iceland.