Tæplega hundrað íslenskir jólabjórar mættir til leiks Margrét Björk Jónsdóttir skrifar 3. nóvember 2022 15:56 þegar lækkar á lofti sólin, þá kemur jólabjórinn Vísir/GettyImages Bjórþyrstir Íslendingar eru líklega sérlega kátir þessa stundina, þar sem sala á jólabjór hófst í verslunum ÁTVR í dag. Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi þar sem tæplega hundrað tegundir eru í boði. Þar af eru íslensku bjórarnir í miklum meirihluta eða 91.
Julebryg frá Tuborg var langvinsælasti jólabjórinn í fyrra.ÁTVR Sveinn Víkingur Árnason, framkvæmdastjóri ÁTVR segir daginn einn af vertíðardögum fyrirtækisins og mikinn gleðidag. Samkvæmt honum seljast alltaf einhverjar tegundir upp og engin leið sé að spá til um hvaða bjór verði vinsælastur það árið. 420.000 lítrar af Julebryg Í fyrra var Tuborg Julebryg langvinsælastur en af honum seldust tæplega 420.000 lítrar, samkvæmt upplýsingum frá ÁTVR. Aðrar vinsælar tegundir voru jólabjórarnir frá Viking og Thule, Jólagull, Hvít Jól Mandarínu White Ale og Jólakaldi.
Áfengi og tóbak Verslun Jól Mest lesið Missir alla stjórn á jólaskrautinu Jól Margar hættur fyrir dýrin um jólin Jól Öðruvísi jól eftir fráfall Jóns Jól Svona tengist Bergen einni helstu jólaráðgátu Íslands Jól Jóladagatal - 16. desember - Púsluspil Jól Gógó-dansarar sungu Sweet Caroline þegar klukkan sló sex á aðfangadag Jól Jóladagatal - 4. desember - Músastigar Jól Hátíðarterta með eplum og karamellukremi Jól Dónalegur pakki gerði Ástrós vandræðalega á aðfangadagskvöld Jól Jólamolar: Stjórnlaus þegar kemur að möndlugrautnum Jól