Sport 24 er íslensk verslun og hluti af danskri keðju sem rekur yfir 180 verslanir í Danmörku, og Færeyjum. Sport 24 selur öll helstu íþrótta- og útivistarmerki heims en meðal merkja er að finna Adidas, Endurance, Hoka, Hummel, Nike, Puma, The North Face, Under Armour og Virtus. Úrvalið spannar alla aldurshópa og því hægt að fata fjölskylduna upp.

„Okkar drifkraftur liggur í að geta boðið skó og fatnað á alla fjölskylduna á góðu verði, allt frá ungbörnum til langömmu og -afa,“ segir Júlíus. „Flóran samanstendur af 60 merkjum og auk þeirra erum við með mörg hliðarmerki sem stakar vörur.
Við erum í sérstaklega góðri stöðu þegar kemur að samningum við birgja í magninnkaupum því við erum hluti af svo stórri keðju. Það gerir okkur kleift að bjóða verð sem ekki er á færi allra að bjóða.“
Sport 24 opnaði fyrstu verslunina hér á Íslandi fyrir fjórum árum í Miðhrauni í Garðabæ, í Reykjanesbæ og á Akureyri og síðast Outletverslun á Smáratorgi. Opnun vefverslunar hafði verið lengi í undirbúningi áður en hún fór í loftið í vor. Vefverslunin fékk glænýtt útlit í september.

„Vefverslunin er einföld og notendavæn. Hún er samtengd búðunum og Outlettinu svo viðskiptavinir sjá allt okkar vöruúrval þar inni. Vörúrvalið er eins og áður sagði mjög breytt og undir hverju vörunúmeri eru síðan mörg snið og litir. Sem dæmi erum við með um 133 mismunandi týpur af buxum á krakka, það ættu því allir að finna eitthvað sem hentar,“ segir Júlíus.
„Við erum einnig með rúman skilafrest en hjá okkur er hægt að skila og skipta jólagjöfunum til 1. mars á næsta ári en ekki 31. desember eins og oft er. Lengri skilafrestur er heppilegri þegar fólk er að gefa jólagjafir til dæmis út á land og fólk er mjög ánægt með þessa þjónustu. Við leggjum ríka áherslu á að koma sem best til móts við viðskiptavini, bæði í verði og þjónustu. Allar pantanir sem berast til okkar fyrir klukkan 13 á daginn eru afgreiddar samdægurs út frá okkur. Þegar verslað er fyrir meira en 15.000kr er frí sending á pósthús eða póstbox.“
Allar nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Sport 24.





