Einar Karl hefur rift samningi sínum við Stjörnuna Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 4. nóvember 2022 20:30 Einar Karl Ingvarsson í leik með Stjörnunni á Hlíðarenda. Vísir/Diego Miðjumaðurinn Einar Karl Ingvarsson hefur rift samningi sínum við lið Stjörnunnar í Bestu deild karla í fótbolta. Einar Karl nýtti sér uppsagnarákvæði í samningi sínum sem átti að renna út eftir tímabilið 2023.
Fótbolti.net greinir frá en ekki kemur fram hvort Einar Karl sé að íhuga að endursemja í Garðabænum eða ætli sér að fara frítt til annars liðs. Það er þó talið ólíklegt að Einar Karl verði áfram hjá Stjörnunni en fyrr í sumar fór umræða af stað að leikmaðurinn væri óánægður í Garðabænum. Einar Karl samdi í Garðabænum á síðasta ári og var því að ljúka sínu öðru tímabili með liðinu. Þar áður var hann á mála hjá Val, þar sem hann varð meðal annars Íslandsmeistari tvívegis. Alls kom hinn 29 ára gamli Einar Karl við sögu í 23 af 27 deildarleikjum Stjörnunnar í ár. Liðið endaði í 5. sæti með 37 stig. Einar Karl er uppalinn hjá FH í Hafnafirði en hefur einnig spilað með Grindavík og Fjölni. Það er spurning hvort hann horfi heim í Hafnafjörð en reikna má með miklum breytingum á leikmannahóp FH sem rétt slapp við fall í sumar.
Fótbolti Íslenski boltinn Stjarnan Besta deild karla Mest lesið Schmeichel um áfall sonarins: „Vil ekki að þetta endi svona“ Fótbolti Neitaði að stökkva í skíðastökki: „Ég hugsaði um kærustuna mína“ Sport Glósublað Rosenior og meira fíaskó: „Fáránlegur leikþáttur“ Fótbolti Sjáðu bombuna sem Gummi Ben missti sig yfir og fyrsta rauða á ferlinum Fótbolti „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Íslenski boltinn Svona var fundurinn þegar Arnar kynnti vesturfara Fótbolti „Hann var eins og spenntur krakki í leikfangabúð“ Fótbolti Hótar að mæta aldrei aftur eftir „sorglega gagnrýni“ Sport Gylfi í hópnum sem mætir Kanada og Haítí Fótbolti Alfreð með skýrt svar: „Þeir verða að ráða framhaldinu“ Handbolti Fleiri fréttir „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking Sjá meira