Innlent

Eggvopnaður innbrotsþjófur og árás á greiðasaman ökumann

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Nokkur fjöldi ökumanna var stöðvaður í umferðinni í gær vegna ýmissa umferðarlagabrota.
Nokkur fjöldi ökumanna var stöðvaður í umferðinni í gær vegna ýmissa umferðarlagabrota. Vísir/Vilhelm

Til átaka kom í nótt þegar húsráðandi í póstnúmerinu 105 kom að manni sem hafði brotist inn. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu dró innbrotsþjófurinn upp eggvopn og otaði að húsráðanda, sem tókst þó að ná taki á þjófnum.

Hlaut húsráðandi skurð á hendi og var fluttur á Landspítala. Innbrotsþjófurinn var handtekinn og sömuleiðis fluttur á spítalann til aðhlynningar en síðan í fangageymslur lögreglu.

Lögreglu barst einnig tilkynning um líkamsárás á Breiðholtsbraut. Þar hafði ökumaður bifreiðar orðið fyrir árás farþega sem hann hafði boðið far. Um var að ræða tvo menn sem vildu að þeim yrði ekið í Hafnarfjörð en ökumaðurinn var á leið í Breiðholtið.

Var ökumaðurinn ítrekað kýldur í andlitið og lyklar bifreiðarinnar teknir af honum. Mennirnir voru handteknir skömmu síðar og vistaðir í fangageymslum vegna rannsóknar málsins.

Um kvöldmatarleytið var tilkynnt um umferðaróhapp á Reykjanesbraut móts við Stekkjarbakka. Þar var bifreið ekið inn í hlið næstu bifreiðar og festust þær saman um tíma. Annar ökumaðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á Landspítala vegna eymsla í skrokknum.

Hinn var handtekinn, grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Þegar í fangageymslu var komið kenndi hann sér eymsla og var fluttur á bráðadeild en aftur ekið í fangageymslu að því loknu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×