Grænþvottur: Allir þurfa að vera fullvissir um að loforð standist Rakel Sveinsdóttir skrifar 18. nóvember 2022 07:01 Kristbjörg M.Kristinsdóttir, fjármálastjóri Stefnis og stjórnarformaður IcelandSIF segir miklu máli skipta að allir skilji hvaða áhætta hlýst af grænþvotti. Undanfarið hafa borist fréttir um að fjármálafyrirtæki í Evrópu séu að verða fyrir ámæli í kjölfar ásakana um grænþvott. Vísir/Vilhelm Grænþvottur – Er allt vænt sem vel er grænt? er yfirskrift fundar sem IcelandSIF stendur fyrir næstkomandi mánudag, en IcelandSIF eru samtök fjármálafyrirtækja, lífeyrissjóða, tryggingafélaga og aukaaðila sem hefur það hlutverk að efla þekkingu félagsaðila á aðferðarfræði sjálfbærra og ábyrgra fjárfestinga. „
Grænþvottur er hugtak sem er frekar nýtilkomið í almenna umræðu en ég tel vera nokkuð mikla vitundarvakningu um það um þessar mundir. Það hefur til dæmis verið mjög ánægjulegt að sjá hvað þeim fyrirtækjum fer fjölgandi sem eru ekki aðeins að segja frá því sem vel hefur tekist, heldur einnig að greina frá þeim atriðum sem stefnt er að því að bæta til að stuðla að sjálfbærni,“ segir Kristbjörg M. Kristinsdóttir formaður IcelandSIF. Fundurinn verður haldinn í Veröld, húsi Vigdísar og hefst klukkan 08.30 á mánudagsmorguninn. Fyrirlesarar eru Hugo Gallagher, aðstoðarframkvæmdastjóri EuroSIF og forstöðumaður stefnumótunar og ráðgjafar og Eric Pedersen, yfirmaður sjálfbærra fjárfestinga hjá Nordea og varaformaður DanSIF. Þá verða í pallborðsumræðum Unnur Gunnarsdóttir varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands, Aðalheiður Snæbjarnadóttir, sjálfbærnistjóri Landsbankans og Gunnar S. Magnússon, yfirmaður sjálfbærni og loftlagsmála og meðeigandi hjá Deloitte. Markmið fundarins er að fara yfir þýðingu grænþvotts frá mismunandi sjónarhornum en hugtakið grænþvottur var fyrst notað af Jay Westerveld á níunda áratugnum. Hugtakið felur í sér að fyrirtæki setji fram rangar eða villandi upplýsingar og gefi þannig ranga mynd, eða veiti villandi upplýsingar um sjálfbærni vöru eða þjónustu. Kristbjörg segir mikilvægt að taka umræðuna nú um grænþvott. Enda séu viðamiklar breytingar á laga- og regluverkinu framundan, breytingar sem verða innleiddar á Íslandi í kjölfar innleiðinga þeirra hjá Evrópusambandinu. „Eftirspurnin eftir sjálfbærum fjárfestingum hefur verið að aukast mikið og að mínu mati hafa sjálfbærar fjárfestingar farið fram úr sjálfu regluverkinu,“ segir Kristbjörg sem fagnar þeim breytingum sem framundan eru og telur að þær verði öllum til góðs. „Rétt eins og gilti með góða stjórnarhætti á sínum tíma.“ Þá segir hún mikilvægt að allir leggist á eitt við að sporna við grænþvotti. Til dæmis sé mikilvægt að aðilar, eins og IcelandSIF, miðli þeirri þekkingu sem er að byggjast upp meðal aðildarfélaga áfram til sem flestra. „Grænþvottur dregur úr trúverðugleika fjármálaafurða og neytendur og fjárfestar þurfa að vera fullvissir um að staðið sé við þau loforð sem búið er að veita. Þess vegna skiptir svo miklu máli að allir skilji hvaða áhætta hlýst af grænþvotti og sömuleiðis að upplýsingar frá fjölmörgum aðilum eru liðir í keðju sem má ekki rofna,“ segir Kristbjörg og bætir við: „Undanfarið höfum við verið að sjá fjármálafyrirtæki í Evrópu verða fyrir ámæli í kjölfar ásakana um grænþvott. Þetta skaðar fyrirtækin mjög enda snýst það að sporna við grænþvotti um að kynna sjálfbærar fjármálaafurðir rétt og af heilindum til þess að fjárfestar geti treyst því að þær stuðli að þeim jákvæðu breytingum sem þeim er ætlaða að gera.“
Samfélagsleg ábyrgð Umhverfismál Loftslagsmál Íslenskir bankar Lífeyrissjóðir Tryggingar Stjórnun Tengdar fréttir Fyrirtæki ákærð og stjórnendur reknir fyrir að fegra upplýsingar „Fólk verður að átta sig á því að úti í hinum stóra heimi er verið að ákæra fyrirtæki og reka stjórnendur fyrir grænþvott, en grænþvottur kallast það þegar upplýsingar gefa til kynna að starfsemin sé grænni en hún er í raun. Þetta er staðan og þetta verður framtíðin ef fyrirtæki taka ekki alvarlega á sínum sjálfbærnimálum og fara að sýna raunverulegan árangur,“ segir Þorsteinn Kári Jónsson forstöðumaður sjálfbærni og samfélagstengsla hjá Marel. 10. nóvember 2022 07:01 Móbergið mögulega jákvæð lausn fyrir heiminn en ekki íslenska bókhaldið Það kemur kannski á óvart að heyra hversu mikil rannsóknar- og nýsköpunarstarf fer fram hjá BM Vallá. Fyrirtækið vinnur að nokkrum nýsköpunarverkefnum þessi misserin, þar sem hver steypuuppskriftin á fætur annarrar er blönduð, prófuð, rannsökuð og mæld. 9. nóvember 2022 07:00 Sjálfbærni: Tökum stökk í upplýsingagjöf en erum langt á eftir í öðru Niðurstöður viðamikillar úttektar KMPG á heimsvísu um sjálfbærni fyrirtækja sýnir að íslensk fyrirtæki hafa tekið risastórt stökk í upplýsingagjöf um sjálfbærni. 7. nóvember 2022 07:00 „Ekki líta á sjálfbærniupplýsingar sem markaðsefni“ „Ekki líta á sjálfbærniupplýsingar sem markaðsefni. Líttu á þær sem virðisaukandi upplýsingar sem auka aðgengi fjármálamarkaðarins að fyrirtækinu þínu,“ segir Reynir Atlason, forstöðumaður sjálfbærnimála hjá Creditinfo og formaður dómnefndar Hvatningaverðlauna fyrir sjálfbærniskýrslu ársins 2022. 7. júní 2022 07:01 „Stundum verða þessar skýrslur of mikið „sjáið hvað við erum frábær““ Nikólína Dís Kristjánsdóttir, Sara Júlía Baldvinsdóttir og Ísak Máni Grant luku nýverið nýjum áfanga sem Bjarni Herrera kennir í HR þar sem áhersla er lögð á sjálfbæran rekstur og upplýsingagjöf. 6. júní 2022 11:12 Mest lesið „Það fyrsta sem ég segi er „Góða morgun““ Atvinnulíf Íslensk fyrirtæki geti endurheimt verulegar fjárhæðir Viðskipti innlent Tvöfaldar tolla á innflutt stál og ál Viðskipti erlent Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Í hópi þeirra sem hlutu Viator Experience-verðlaunin Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Sektaðar fyrir að trassa með verðmerkingar á Selfossi Neytendur Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Heiður Björk tekur við eftir brotthvarf Gunnars Egils Viðskipti innlent „Þetta er ekki mjög töff en ég get ekki að þessu gert“ Atvinnulíf Fleiri fréttir „Það fyrsta sem ég segi er „Góða morgun““ Gervigreindin og vaxandi vítahringur nýútskrifaðra Stefna að því að opna deiliþjónustu bílferða fljótlega Hringrásin: „Ég er með blæti fyrir gömlu timbri“ „Þetta er ekki mjög töff en ég get ekki að þessu gert“ Besti svefninn níu mínúturnar á milli snúsa Láttu rétta fólkið taka eftir þér í vinnunni Mannauðsmál lögreglunnar: Ljótu málin taka á Stjórnun þarf ekki bara að breytast heldur „gerbreytast” „Við getum fengið Boga Ágústs til að gera og segja hvað sem er“ Að sofna yfir sjónvarpinu á kvöldin telst ekki með Að nýta kvíðann sem styrkleika og okkur til framdráttar „Já veistu Gummi, þetta gæti verið eitthvað“ Vikan sem vex og vex: „Magatilfinningin er jafnvel mikilvægust“ Hrósæfingar fyrir vinnustaði, gryfjur og góð ráð Bankastjóri Íslandsbanka: Syngur hástöfum fjölskyldunni til hryllings Að segja upp án þess að brenna brýr Breytist hratt næstu árin hvaða fyrirtæki teljast stærst og best „Gróskuhugarfarið hjálpar okkur líka að viðurkenna mistök” Reyndist ekki rétt: „Reykvíkingar munu aldrei koma“ „Var með skipt í miðju og notaði óhóflegt magn af geli“ Gervigreindin: Stjórnendur framtíðarinnar verði þjálfarar Hressilega kaótískir morgnar sem eiga það til að klikka smá Starfsfólk truflað á tveggja mínútna fresti Frumkvöðlar í áratugi: „Launalaus sjálfboðavinna fyrstu árin“ Að komast aftur í vinnugírinn eftir geggjað páskafrí Elskar kaffi að ítölskum sið og línulega dagskrá Systkinin öll verið forsetar: „Tvö félög, tvöfalt stuð!“ Boða alvöru breytingar í jafnréttismálum efnahags- og atvinnulífs Hundurinn tannlaus og unglingarnir vaktir með diskaglamri Sjá meira
Fyrirtæki ákærð og stjórnendur reknir fyrir að fegra upplýsingar „Fólk verður að átta sig á því að úti í hinum stóra heimi er verið að ákæra fyrirtæki og reka stjórnendur fyrir grænþvott, en grænþvottur kallast það þegar upplýsingar gefa til kynna að starfsemin sé grænni en hún er í raun. Þetta er staðan og þetta verður framtíðin ef fyrirtæki taka ekki alvarlega á sínum sjálfbærnimálum og fara að sýna raunverulegan árangur,“ segir Þorsteinn Kári Jónsson forstöðumaður sjálfbærni og samfélagstengsla hjá Marel. 10. nóvember 2022 07:01
Móbergið mögulega jákvæð lausn fyrir heiminn en ekki íslenska bókhaldið Það kemur kannski á óvart að heyra hversu mikil rannsóknar- og nýsköpunarstarf fer fram hjá BM Vallá. Fyrirtækið vinnur að nokkrum nýsköpunarverkefnum þessi misserin, þar sem hver steypuuppskriftin á fætur annarrar er blönduð, prófuð, rannsökuð og mæld. 9. nóvember 2022 07:00
Sjálfbærni: Tökum stökk í upplýsingagjöf en erum langt á eftir í öðru Niðurstöður viðamikillar úttektar KMPG á heimsvísu um sjálfbærni fyrirtækja sýnir að íslensk fyrirtæki hafa tekið risastórt stökk í upplýsingagjöf um sjálfbærni. 7. nóvember 2022 07:00
„Ekki líta á sjálfbærniupplýsingar sem markaðsefni“ „Ekki líta á sjálfbærniupplýsingar sem markaðsefni. Líttu á þær sem virðisaukandi upplýsingar sem auka aðgengi fjármálamarkaðarins að fyrirtækinu þínu,“ segir Reynir Atlason, forstöðumaður sjálfbærnimála hjá Creditinfo og formaður dómnefndar Hvatningaverðlauna fyrir sjálfbærniskýrslu ársins 2022. 7. júní 2022 07:01
„Stundum verða þessar skýrslur of mikið „sjáið hvað við erum frábær““ Nikólína Dís Kristjánsdóttir, Sara Júlía Baldvinsdóttir og Ísak Máni Grant luku nýverið nýjum áfanga sem Bjarni Herrera kennir í HR þar sem áhersla er lögð á sjálfbæran rekstur og upplýsingagjöf. 6. júní 2022 11:12