Byggingafyrirtæki enn starfandi þrátt fyrir að greiða verkafólki ekki laun Valur Páll Eiríksson skrifar 9. desember 2022 16:01 Fá fordæmi eru fyrir slíkri byggingarvinnu sem þurft hefur að sinna fyrir HM í Katar. Sú vinna fer ekki alltaf vel fram og kemur niður á farandverkamönnum. Matthew Ashton - AMA/Getty Images Katarskt byggingafyrirtæki er enn starfrækt þrátt fyrir loforð katarskra yfirvalda um annað þegar í ljós kom að fyrirtækið greiddi ekki starfsfólki sínu. Fyrirtækið átti að eiga í vandræðum með að greiða laun vegna meintrar lokunar þess, en starfsemi er enn virk í fyrirtækinu.
Fyrirtækið, Al Bandary Group, hélt aftur af greiðslum til þúsunda starfsmanna í um tvær vikur í maí síðastliðnum áður en stórum hluta farandverkamannana á þeirra snærum var vísað úr landi. Margir þeirra yfirgáfu Katar án greiðslu eftir að hafa unnið aðeins brot af umsömdum samningstíma sínum við fyrirtækið. Þeim var þá sagt að sækja bætur í gegnum styrktar- og tryggingasjóð verkafólks í Katar, sem á að veita bætur vegna vangoldinna launa. Í nóvember vísaði katarsktur embættismaður til lokunar Al Bandary, sem útskýrði vangoldnu launin, og í þessari viku var fyrirtækið sagt á svörtum lista frá því að tryggja sér nýja samninga. Tæplega tólfhundruð bíða launa og mótmælendur reknir úr landi Samkvæmt The Athletic bíða um 1.150 starfsmenn enn launagreiðslna sinna. Það fer gegn fullyrðingum katarsks embættismanns sem sagði í síðustu viku að allir starfsmenn sem hefðu orðið fyrir barðinu á fyrirtækinu hefðu fengið greitt og verið veitt tækifæri til að halda áfram störfum í Katar. Fréttamenn The Athletic heimsóttu fyrirtækið í vikunni og fengu staðfest að Al Bandary starfar enn, þrátt fyrir fullyrðingar katarskra yfirvalda um annað. Við komuna að höfuðstöðvum fyrirtækisins urðu fréttamennirnir vitni að um 60 manna mótmælum þar fyrir utan. Fjölmargir þeirra 60 voru ýmist handteknir eða reknir úr landi fyrir að „brjóta öryggisreglur“, en ekki liggur fyrir hversu margir. Gefa lítið fyrir andlátið Katarar hafa sætt töluverðri gagnrýni vegna réttinda verkafólks í landinu í tengslum við heimsmeistaramótið í fótbolta sem nú stendur þar yfir. Greint var frá því í gær að verkamaður hefði látist á meðan mótinu stóð og er hann sagður á meðal þúsunda sem hafa látið lífið við uppbyggingu þess. Nema þú spyrjir katörsk yfirvöld og Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA, sem segja andlátin teljandi á fingrum annarrar handar. Framkvæmdastýra FIFA neitaði að tjá sig um dauðsfallið og Nasser Al Khater, framkvæmdastjóri heimsmeistaramótsins í Katar, sagði dauðann náttúrulegan hluta lífsins, hvort sem væri í vinnuslysi eða í svefni. Hann hefur sætt töluverðri gagnrýni fyrir frá mannréttindasamtökum, t.a.m. Human Rights Watch og Amnesty International sem hafa ítrekað bent á að tölum Katara yfir dauðsföll sé ekki treystandi þar sem andlát verkamanna séu ekki rannsökuð. „Ætlum við einfaldlega að láta yfirvöld hafa okkur af fíflum?“ „Al Bandary málið kristallar vandamálin með réttindi starfsmanna í Katar,“ segir Mustafa Qadri, forstjóri mannréttindasamtakanna Equidem, við The Athletic. „Það fer að kjarna málsins með umbætur á vinnumarkaði.“ „Ætlum við einfaldlega að láta yfirvöld hafa okkur af fíflum? Þeir hafa þessi formlegu viðbrögð og fyrirkomulag, en í raun og veru láta þau fyrirtæki ekki bera ábyrgð. Fólk sem hefur farið til Katar til að reyna að skapa betra líf fyrir fjölskyldur sínar hefur verið fast án launa sinna, það meikar engan sens. Þetta er algjör bilun í kerfinu og það er engin afsökun fyrir því.“ sagði Qadri enn fremur.
Katar HM 2022 í Katar Mest lesið Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Íslenski boltinn Öruggur sigur City Enski boltinn Snævar setti heimsmet Sport Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Enski boltinn „Er ekki alveg viss um hvar hann hefur lært körfubolta“ Körfubolti Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Fótbolti Maddie Sutton í sögubækurnar í fámennum hóp Körfubolti Sjáðu Messi skjóta Inter Miami áfram í fyrsta sinn Fótbolti Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Enski boltinn Fyrsta jafntefli Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Markaregn í enska boltanum í dag Inter aftur á toppinn eftir sigur á Lazio Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Kristall Máni á skotskónum í sigurleik Enginn varið fleiri víti en Mamardashvili Daníel Tristan skoraði sigurmark Malmö Albert skoraði en Fiorentina enn án sigurs og á botninum Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Fyrsta jafntefli Real Madrid Fanney sænskur meistari í fyrstu tilraun Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Sjáðu Messi skjóta Inter Miami áfram í fyrsta sinn Hvetur Napólí til að sækja óánægðan Mainoo Parma nældi í stig gegn toppliði AC Milan Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Sanngjarn heimasigur Algjör markaþurrð í Seríu A Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Union Berlin stöðvaði ótrúlega sigurgöngu Bayern Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Emelía og stöllur með átta stiga forskot Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Stefán Teitur og félagar upp í þriðja sætið Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Sjá meira