Innlent

Á­reitti gesti veitinga­húss og stal af þeim

Atli Ísleifsson skrifar
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði nokkra ökumenn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði nokkra ökumenn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Vísir/Hanna

Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók mann í annarlegu ástandi á veitingahúsi í miðborg Reykjavíkur um klukkan 17:30 í gær.

Maðurinn er sagður hafa verið að áreita gesti, stolið af þeim og ekki viljað yfirgefa staðinn. Er maðurinn grunaður um brot á lögreglusamþykkt og var hann færður í fangageymslu lögreglu vegna ástands síns.

Frá þessu segir í tilkynningu frá lögreglu þar sem segir frá verkefnum lögreglu í gærkvöldi og í nótt.

Um klukkan 20 var tilkynnt um innbrot í hús í hverfi 110 í Reykjavík þar sem húsráðandi hafði komið heim og þá hafi verið búið að brjótast inn í íbúð hans. Búið var að róta í öllum hirslum og stela fartölvu og fleiri verðmætum.

Í hverfi 109 í Reykjavík, Neðra-Breiðholti, voru afskipti höfð af manni vegna vörslu fíkniefna. Efnin voru haldlögð og skýrsla rituð.

Lögregla stöðvaði sömuleiðis nokkra ökumenn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×