Stjórnvöld á Bahama gáfu út yfirlýsingu um að Bankman-Fried hefði verið tekinn höndum eftir að formleg tilkynning um ákæru var send út. Bandaríkjastjórn muni líklega falast eftir að hann verði framseldur. Bankman-Fried er sagður hafa verið samvinnuþýður þegar hann var tekinn fastur. Hann á að koma fyrir dómara í Nassá, höfuðborg Bahamaeyja í dag.
Saksóknarar í New York staðfesta við New York Times að Bankman-Fried hafi verið ákærður og að leynd verði létt af ákærunni í dag. Verðbréfa- og kaupþingsnefnd Bandaríkjanna (SEC) segist einnig hafa gefið út ákæru vegna brota á verðbréfalögum.
Heimildir bandaríska dagblaðsins herma að Bankman-Fried sé ákærður fyrir fjársvik, verðbréfasvik og peningaþvætti. Hann er sagður sé eini sem er ákærður.
Óvenjufljótt handtekinn
FTX var þriðja stærsta rafmyntakauphöll í heimi en hún var tekin til gjaldþrotameðferðar í síðasta mánuði. Félagið lenti í alvarlegri lausafjárþurrð þegar viðskiptavinir gerðu áhlaup og drógu út milljarða dollara innistæður eftir fréttir af því að nátengt fyrirtæki stæði á brauðfótum.
Skiptastjóri sem tók við FTX hefur sagt að hann hafi aldrei séð aðra eins óstjórn hjá fyrirtæki. Þau orð eru talin hafa sérstaka vigt þar sem hann sá áður um fjárhagslega endurskipulagningu Enron, orkurisans sem fór á hausinn eftir að upp komst um stórfelldar bókhaldsbrellur sem voru notaðar til þess að fela gríðarlegt tap.
Sérfræðingum sem New York Times ræddi við kom á óvart hversu fljótt Bankman-Fried var handtekinn. Yfirleitt taki það saksóknara marga mánuði að gefa út ákæru í flóknum hvítflibbamálum.
Bankman-Fried átti að bera vitni fyrir þingnefnd í Washington-borg í dag. Maxine Waters, formaður fjármálaþjónustunefndar fulltrúadeildarinar, segir Bankman-Fried skulda bandarískum almenningi skýringar á gjörðum sínum sem leiddu til fjárhagslegs tjóns fyrir fjölda manns. Tímasetning handtökunnar svipti almenning tækifæri til að fá þær skýringar.