Eltu sofandi ökumann í korter Samúel Karl Ólason skrifar 2. janúar 2023 16:53 Þýskir lögregluþjónar veittu Teslunni eftirför og reyndu ítrekað að vekja ökumann bílsins. EPA/LUKAS BARTH-TUTTAS Lögreglan í Bæjarlandi í Þýskalandi átti í eftirför í síðustu viku sem verður að teljast óhefðbundin. Ítrekaðar tilraunir til að reyna að fá ökumann Teslu rafmagnsbíls til að stöðva gengu ekki eftir en ökumaðurinn reyndist steinsofandi við stýrið. Bílinn var þó stilltur á sjálfstýringu.
Þetta átti sér stað á hraðbraut í Bæjarlandi á miðvikudaginn. Lögregluþjónar reyndu að stöðva bílinn en ökumaður hans svaraði ekki skipunum lögregluþjóna og sýndi heldur engin viðbrögð við flautum. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni tóku lögregluþjónar þó eftir því að bíllinn hélt sér í ákveðinni fjarlægð frá lögreglubílnum og sáu að ökumaðurinn hafði hallað sætinu aftur og lá með lokuð augun í bílnum. Eftir um fimmtán mínútur vaknaði maðurinn og stöðvaði loksins bílinn. Maðurinn var grunaður um að vera undir áhrifum við aksturinn. Við leit í bílnum fundu lögregluþjónar sérstakan búnað sem notaður er til að plata skynjara bíla frá Tesla til að halda að ökumaðurinn sé með hendurnar á stýrinu. Samkvæmt lögum Þýskalands er notkun sjálfstýringarbúnaðar með þessum hætti bönnuð. Maðurinn er grunaður um að ógna öryggi annarra í umferðinni en hefur ekki verið ákærður enn. Honum hefur verið gert að skila inn ökuskírteini sínu þar til rannsókn er lokið.
Þýskaland Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Sjá meira