Dagur vonar að Egill og aðrir geti dregið fram skautana fyrr en seinna Jakob Bjarnar skrifar 19. janúar 2023 11:15 Egill hefur velt af stað nostalgísku skautaæði á netinu en netverjar búsettir í miðborginni velta því fyrir sér hvers vegna borgaryfirvöld skafi ekki snjóinn af tjörninni svo það geti dregið fram skautana. Dagur segir að snjóruðningstæki borgarinnar hafi verið nýtt í mokstur að undanförnu, á götum og stígum ekki af veitt. vísir/vilhelm/Schinn Egill Helgason sjónvarpsmaður birti á dögunum gamla mynd af ísilagðri tjörninni í Reykjavík. Og óhætt er að segja að skautaáhugi í bland við fortíðarþrá hafi brotist út á netinu í kjölfarið, einkum meðal miðborgarbúa og Vesturbæinga.
Egill fylgir myndinni úr hlaði með eftirfarandi orðum: „Sumt skil ég ekki. Eins og að ekki skuli vera búið að fara með sköfu og búa til skautasvell á Tjörninni eftir langvarandi froststillur. Er þetta þó beint fyrir framan Ráðhúsið og borgarfulltrúana. Þar sem Ráðhúsið stendur var meira að segja hús þar sem maður reimdi á sig skautana í eina tíð.“ Fjölmargir lýsa sig hjartanlega sammála Agli, „læk-in“ eru komin yfir þúsund og myndinni og áskorun Egils hefur verið dreift um um netheima, meðal annars inn á Facebook-hópinn Vesturbærinn þangað sem Sveinn Sigurður Kjartansson deilir og segir: Nákvæmlega! „Ég er búinn að vera afar hugsi yfir þessu og kannski maður sendi tölvupóst fyrst ekkert virðist gerast af sjálfu sér.“ Líf Magneudóttir borgarfulltrúi Vinstri grænna tekur til máls á þeim vettvangi og segist hafa sent skeyti 28. desember … „á skrifstofu umhirðu borgarlandsins og bað um skautasvell. Eðli málsins samkvæmt var mikið að gera á þeim tíma, enginn mannskapur til reiðu og tækin öll í notkun en þau ætluðu að ganga í þetta um leið og færi gæfist. Ég er enn að bíða.“ Götur og stígar í forgangi Vísir setti sig í samband við Dag B. Eggertsson borgarstjóra og spurði hann hvort það væri ekki vert að láta til sín taka, drífa sig út á ísinn með skóflu og kúst og pússa klakann fyrir skautaglaða borgarbúa? „Já, þetta er vel athugað hjá Agli,“ segir Dagur. En nú er sú staða uppi að mikill snjór er á ísnum. „Vaskir starfsmenn borgarinnar skafa jafnan svellið á Tjörninni þegar snjóar í það. Þannig hefur þó háttað til í vetur að það var egg-slétt og snjólaust í frostinu nær allan desember og var talsvert notað til skauta og leikja borgarbúa á öllum aldri.“ Myndin er að sönnu skemmtileg en hún mun hafa verið tekin 1942 og ljósmyndarinn er Alida Visscher Schinn. En skömmu fyrir jól snjóaði svo um munaði eins og flestir vita, sem þýðir að ógerlegt er að þjóta um ísilagða tjörnina á skautum. „Eftir að snjóinn gerði var það sett í forgang að tækin væru í mokstri á götum og stígum og hefur ekki veitt af. Við eigum svo von á rigningu samkvæmt spám í vikulok. Munum hins vegar sæta færis þegar gerir frostakafla aftur og skafa svellið. Egill og aðrir geta þá tekið fram skautana.“ Myndin frá árinu 1941 Umrædd mynd, kveikjan að skautagleðinni nú, er Agli hugleikin því í febrúar 2016 birti hann myndina og lét fylgja bloggpistli sínum en myndina hafði hann af vef sem heitir Gamlar ljósmyndir, en þar var sagt að myndina hafi Alida Visscher Schinn tekið. „Myndin mun vera tekin 1941 og sýnir mikinn fjölda fólks á skautum á Tjörninni. Í mínu ungdæmi var Tjörnin ennþá þessi samkomustaður á vetrum, börn flykktust þangað á skauta, það var leikin tónlist úr hátölurum og ef ég man rétt var hægt að kaupa kakó í kjallara húss sem stóð þar sem Ráðhúsið er núna,“ skrifaði Egill þá og bætti því við að þangað hafi hann farið með vinum sínum og kynntist börnum úr öðrum hverfum.
Skautaíþróttir Borgarstjórn Veður Reykjavík Einu sinni var... Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Fleiri fréttir Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum Sjá meira