Innlent

„Það vantar stöðugleika í þetta ráðuneyti“

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Jón segist ekkert hafa heyrt um það hvenær hann eigi að yfirgefa ráðuneytið.
Jón segist ekkert hafa heyrt um það hvenær hann eigi að yfirgefa ráðuneytið. Vísir/Vilhelm

„Það liggur fyrir að formaður flokksins hefur boðað breytingar á ríkisstjórninni. Hvenær það verður nákvæmlega og hvernig get ég ekki sagt um. Ég hef ekki fengið nein skilaboð um það að pakka saman, hvorki frá flokksformanninum né þingflokknum.“

Þetta segir Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra í samtali við Fréttablaðið, þar sem rætt er um þær fyrirætlanir að skipta honum út í dómsmálaráðuneytinu fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði eftir síðustu kosningar að Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra myndi hætta á kjörtímabilinu og Guðrún taka við. Eftir að Jón gaf til kynna fyrr í vetur að breytingar kynnu að verða á þessari tilhögun var Bjarni spurður út í málið í Pallborðinu á Vísi.

„Ég var skýr með það frá upphafi og hef aldrei skipt um skoðun á því,“ svaraði Bjarni. Honum hefði hins vegar fundist Jón „í miðri á“ og með mörg verkefni á sinni könnu.

Guðrún sagðist á dögunum gera ráð fyrir því að taka við dómsmálaráðuneytinu í mars.

Í viðtalinu við Fréttablaðið endurtekur Jón hins vegar það sem Bjarni sagði í Pallborðinu, nánast orðrétt: „Það er óheppilegt að skipta um hest í miðri á,“ segir hann.

Jón segir menn auðvitað í pólitík til að hafa áhrif en viðurkennir að hafa verið svolítið stressaður yfir að fá dómsmálaráðuneytinu úthlutað og þeim stóru verkefnum sem biðu þar. Hann segir ráðherra dómsmála á sprengjusvæði, sem sé ein ástæða ráðherraveltunnar í ráðuneytinu.

„Það vantar stöðugleika í þetta ráðuneyti. Ég er ekki fyrr búinn að koma mér vel inn í öll flóknustu mál þess áður en ég mögulega á að hverfa á braut,“ segir Jón.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×