Handtekinn fyrir líkamsárás og reyndist eftirlýstur Árni Sæberg skrifar 27. febrúar 2023 06:45 Töluverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu að snúast í gærkvöldi og í nótt. Tilkynnt var um þrjár líkamsárásir og nokkuð af innbrotum. Einn gerandi líkamsárásar reyndist eftirlýstur.
Í dagbók lögreglu segir að lögregluþjónar hafi sinnt útkalli vegna líkamsárásar í miðbæ Reykjavíkur. Málið hafi verið leyst með því að ræða við hlutaðeigandi. Annars staðar í borginni hafi maður verið handtekinn vegna tilkynningar um líkamsárás. Sá hafi fundist skammt frá vettvangi í annarlegu ástandi og verið látinn gista fangaklefa. Þá segir að í umdæmi lögreglustöðvar 3, sem heldur uppi lögum og reglu í Kópavogi og Breiðholti, hafi verið tilkynnt um líkamsárás. Þegar lögregla kom á vettvang til að handtaka meintan geranda hafi komið í ljós að hann var eftirlýstur. Undir aldri á ofsahraða Þá segir í dagbókinni að í umdæmi stöðvar 2, sem þjónustar Garðabæ og Hafnarfjörð, hafi verið tilkynnt um innbrot í fyrirtæki. Þar höfðu innbrotsþjófar komist á brott með verðmæti. Þá hafi verið tilkynnt um yfirstaðið innbrot í fyrirtæki í hverfi 110. Önnur verkefni lögreglunnar snerust aðallega að umferðinni í gærkvöldi og í nótt. Í umdæmi stöðvar 3 var ökumaður stöðvaður eftir að hafa mælst á 160 kílómetra hraða á klukkustund. Sá reyndist vera undir lögaldri og því var haft samband við foreldra hans. Annar ungur ökuþór var á ferð í umdæmi stöðvar 4. Sá mældist á 120 kílómetra hraða. Það mál var einnig leyst með því að hafa samband við foreldra ökumanns.
Lögreglumál Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Innlent Fleiri fréttir Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Sjá meira