Þórir kallar aftur á nýju mömmuna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. mars 2023 13:01 Kari Brattset Dale í leik með norska landsliðinu á síðasta heimsmeistaramóti árið 2021. Getty/Javier Borrego Þórir Hergeirsson, þjálfari norsku heims- og Evrópumeistarana í handbolta kvenna, hefur kallað aftur á Kari Brattset Dale inn í norska landsliðið.
Brattset Dale varð móðir í vetur og missti því af heimsmeistaramótinu í desember þar sem Noregur vann gull eftir sigur á Frökkum í úrslitaleik. Kari Brattset Dale er 32 ára línumaður sem var í risahlutverki hjá norska liðinu sem vann gull á EM 2020 og gull á HM 2021. Mjög öflugur varnarmaður í miðri vörn norska liðsins sem sást vel á því að hún var kosinn mikilvægasti leikmaðurinn á síðasta heimsmeistaramóti. Brattset Dale tilbake for Norge etter fødsel tre debutanter tatt ut https://t.co/UVq4QmPpiI— Nettavisen Sport (@NettavisenSport) March 16, 2023 Hún eignaðist son í nóvember síðastliðnum og er því búin að vinna sér sæti í besta landsliði heims aðeins fjórum mánuðum síðar. Brattset Dale spilaði síðast með norska landsliðinu í mars á síðasta ári en hún hefur spilað yfir hundrað landsleiki. Hún er aftur byrjuð að spila með ungverska félaginu Győri ETO KC. Þórir valdi líka þrjá nýliða í hópinn eða þær Eli Marie Raasok, Live Rushfeldt Deila og Kristiane Knutsen. Leikirnir sem um ræðir eru tveir leikir á móti Svartfjallalandi 6. og 8. apríl næstkomandi. Á meðan íslenska landsliðið þarf að fara í gegnum umspilsleiki á móti Ungverjum til að komast á HM þá er Noregur með öruggt sæti sem heimsmeistari.
HM 2023 í handbolta Norski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira