Stjarnan í úrslit Lengjubikarsins eftir sigur í vítakeppni Smári Jökull Jónsson skrifar 25. mars 2023 16:07 Jasmín Erla Ingadóttir skoraði mark Stjörnunnar í dag og nýtti einnig sína vítaspyrnu í vítaspyrnukeppninni. Vísir/Hulda Margrét Stjarnan er komin í úrslit Lengjubikars kvenna eftir sigur á Þrótti Reykjavík í undanúrslitum í dag. Vítaspyrnukeppni þurfti til að knýja fram úrslit en Stjarnan mætir Þór/KA í úrslitaleik.
Þór/KA tryggði sér sæti í úrslitum Lengjubikarsins með 2-1 sigri á Blikum á fimmtudag og í boði í dag var sæti í úrslitaleik keppninnar gegn Norðankonum. Leikurinn í dag fór fram á svæði Þróttara í Laugardal en fyrri hálfleikur var markalaus. Jasmín Erla Ingadóttir kom hins vegar Stjörnunni yfir á 62. mínútu þegar hún fékk fyrirgjöf frá Örnu Dís Arnþórsdóttir eftir fínt spil Stjörnukvenna. Jasmín Erla skoraði af stuttu færi og Garðbæingar komnir yfir. Þróttarar bættu í sóknina og tókst að jafna þegar langt var liðið á síðari hálfleikinn. Katla Tryggvadóttir skoraði þá fyrir Þrótt á 77. mínútu þegar boltinn barst til hennar eftir klafs í teignum. Katla kláraði vel og staðan orðin 1-1. Þetta var sjötta mark Kötlu í keppninni. Staðan 1-1 að loknum venjulegum leiktíma og þar sem ekki er framlengt í leikjum Lengjubikarsins var strax farið í vítaspyrnukeppni. Bæði lið skoruðu úr fyrstu tveimur umferðum vítakeppninnar en í þeirri þriðju varði Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving í marki Stjörnunnar frá Freyju Karín Þorvarðardóttur. Í lokaumferðinni þurftu Þróttarar að treysta á að Sædís Rún Heiðarsdóttir myndi klikka á síðustu spyrnu Stjörnunnar en unglingalandsliðskonan Sædís Rún skoraði af öryggi og tryggði Stjörnunni sæti í úrslitum gegn Þór/KA. Úrslitaleikurinn fer fram laugardaginn 1. apríl.
Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira