Báðir stjórar sáu rautt þegar Tottenham lagði Brighton Arnar Geir Halldórsson skrifar 8. apríl 2023 16:00 Upp úr sauð á hliðarlínunni. vísir/Getty Tottenham Hotspur vann gríðarlega mikilvægan sigur á Brighton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Augljóst var að bæði lið gerðu sér vel grein fyrir mikilvægi leiksins en eitt stig skildi liðin að í fimmta og sjötta sæti deildarinnar þegar kom að leik dagsins og bæði lið að eygja þess von að ná fjórða sætinu eftirsótta sem skilar sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Son Heung Min náði forystunni fyrir heimamenn strax á tíundu mínútu en Lewis Dunk jafnaði metin fyrir gestina fyrir leikhlé og staðan því jöfn í hálfleik, 1-1. Eftir tæplega klukkutíma leik sauð upp úr á hliðarlínunni þar sem stjórar liðanna, Ítalirnir Roberto De Zerbi og Christian Stellini, létu hvorn annan heyra það en athygli vakti að þeir áttu í hörðum orðaskiptum áður en flautað var til leiks. Dómari leiksins, Stuart Attwell, sá sig knúinn til að senda báða stjórana upp í stúku og voru því bæði lið stjóralaus síðasta hálftímann. Að endingu reyndist Harry Kane munurinn á liðunum því hann skoraði það sem reyndist sigurmarkið á 79.mínútu og lokatölur 2-1 í leik sem Brighton menn munu eflaust hugsa VAR dómgæslunni þegjandi þörfina en nokkrar umdeildar ákvarðanir féllu gegn liðinu í leiknum þar sem meðal annars var dæmt mark af Kaoru Mitoma auk þess sem hann virtist eiga að fá vítaspyrnu í leiknum. Enski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti