Hagstæð langtímaleiga hjá Brimborg á nýjum rafbílum Brimborg 12. apríl 2023 11:01 Anton Smári Rúnarsson, framkvæmdastjóri Bílaleigusviðs Brimborgar, segir marga góða kosti við að taka rafbíl á langtímaleigu. Það hefur sennilega sjaldan eða aldrei verið jafn öruggt og þægilegt að taka rafbíl á langtímaleigu eins og um þessar mundir. „
Rétti tíminn til að taka rafbíl á langtímaleigu er akkúrat núna,“ segir Anton Smári Rúnarsson, framkvæmdastjóri Bílaleigusviðs Brimborgar. „Mörgum finnst þetta frábær kostur, frekar en að kaupa bíl enda þarf ekki háa útborgun til að taka rafbíl í langtímaleigu.“ Bílaleigusvið Brimborgar býður upp á gott úrval rafbíla. Hann segir ótrúlega marga aðra kosti við að leigja bíl í stað þess að kaup hann. „Sé bíll leigður þarf til dæmis ekki að eiga og geyma dekk, ekki þarf að hafa áhyggjur af viðgerð ef bíllinn bilar auk þess sem fólk sleppur við að hugsa út í tryggingar, borga bifreiðagjöld, sjá um dekkjaskipti og ýmislegt þessu tengt. Þú sleppur því við allt vesenið sem fylgir því að kaupa, selja, gera við og reka bílinn. Fólk er farið að verðmeta tíma sinn betur og spáir meira í hvað það er að eyða orkunni í á hverjum degi.” Enginn eldsneytiskostnaður Hann segir margt fólk einnig farið að átta sig á því að þegar það tekur rafbíl á langtímaleigu er heldur enginn eldsneytiskostnaður þannig að mánaðarleg greiðsla er mjög stöðug. „Ódýrasti rafbíllinn kostar 89.900 kr. á mánuði í langtímaleigu og kostnaðurinn við raforkuna er lítill fyrir utan að keyrt er á endurnýjanlegri íslenskri orku.“ Nú orðið er hægt að hlaða rafbíla mjög víða og stöðugt fjölgar hleðslustöðum. „Rafbílar eru svo snöggir að hlaðast í hraðhleðslu að fólk setur það ekki lengur fyrir sig að geta ekki hlaðið heima hjá sér. Auk þess er hægt að tryggja sig enn frekar fyrir óvæntum útgjöldum í langtímaleigu ef það skyldi koma til tjóns á bíl því við bjóðum upp á víðtækar tryggingar með engri sjálfsábyrgð.“ Hann bendir líka sérstaklega á að Brimborg tekur bíla upp í langtímaleigu svo fólk getur líka sloppið við umstangið við að selja gamla bílinn. „Það eru mjög margir sem nýta sér það. Þá er ekki um að ræða lækkun á langtímaleiguverðinu heldur staðgreiðum við hreinlega gamla bílinn á uppítökuverði.“ Algjör bylting hjá fyrirtækjum Fyrirtæki er líka í auknum mæli að skipta út sínum bílaflota yfir í rafbíla. „Við sjáum fyrir okkur algjöra byltingu hjá fyrirtækjum í rafbílavæðingu þessi misserin. Íslensk fyrirtæki hafa keypt 113,5% fleiri rafsendibíla á árinu en á sama tíma og í fyrra og við hjá Brimborg erum með 62% hlutdeild á þeim markaði. Þegar fyrirtækjaeigendur skoða muninn á rekstrarkostnaði rafsendibíla miðað við aðra, svo ekki sé minnst á þægindin fyrir bílstjórann í formi hljóðlátara vinnuumhverfis með minni titringi, eru þau fljót að skipta.“ Það eru auðvitað ekki allir sem vilja leigja bíl segir Anton. „Þau sem vilja frekar kaupa geta skoðað bæði kaupverð og langtímaleiguverð á einum og sama staðnum, í vefsýningarsal nýrra bíla. Nú er einnig hægt að sjá notaða langtímaleigubíla sem eru í boði bæði í vefsýningarsal notaðra bíla og inni á langtimaleigaabil.is. Þannig að við erum klárlega með eitthvað fyrir alla.“
Vistvænir bílar Bílar Bílaleigur Mest lesið Rúmur milljarður til Viðskiptaráðs og SA á fimm árum Viðskipti innlent „Brunaútsala“ á hlutabréfum eftir eldsvoðann í Hong Kong Viðskipti erlent Hvernig bý ég mig undir barneignir? Viðskipti innlent Afrek að verkáætlun hafi staðist samhliða níu eldgosum Viðskipti innlent Prada gengur frá kaupunum á Versace Viðskipti innlent Ketill nýr framkvæmdastjóri hjá Heilsugæslunni Viðskipti innlent Bíða enn eftir tæpri milljón í endurgreiðslu eftir fall Play Neytendur Vara við listeríu í rifnu grísakjöti Neytendur Allir í limbói vegna fyrirhugaðra breytinga á vörugjaldi Viðskipti innlent Ágreiningur í Peningastefnunefnd um síðustu vaxtalækkun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppselt á stórtónleika Bubba – aukatónleikar fara í sölu á morgun Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Gatnamótin opin á ný við Fjarðarkaup Yfir milljón dagskrárliðir sóttir vikulega Greiðsluáskorun Jólagjöf ársins 2025 veltir sigurvegara síðustu tveggja ára úr sessi Ertu þremur mínútum frá draumastarfinu? Kerfi sem virka eins og lungu landeldisstöðva Sjá meira