Manchester City pakkaði Arsenal saman í toppslagnum á Englandi Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 26. apríl 2023 21:15 Mönnum var heitt í hamsi enda mikið undir. EPA-EFE/ADAM VAUGHAN Englandsmeistarar Manchester City unnu Arsenal 4-1 á Etihad-vellinum í Manchester í uppgjöri toppliða ensku úrvalsdeildarinnar. Mikil spenna ríkti fyrir leik kvöldsins enda talað um að þetta væri leikurinn sem gæti skorið úr um hvort liðið yrði Englandsmeistari. Ef það er raunin þá verður bikarinn áfram í Manchester-borg en heimamenn í City fóru hamförum í fyrri hálfleik. Leikurinn var aðeins sjö mínútna gamall þegar Kevin De Bruyne skoraði með glæsilegu skoti niðri í hægra hornið eftir snarpa sókn heimamanna. Norski framherjinn Erling Braut Håland lagði boltann á De Bruyne í aðdraganda marksins en venjulega er það öfugt, sá belgíski leggur upp á þann norska. 7 - Kevin De Bruyne has scored seven goals against Arsenal in the Premier League, two more goals than he has scored against any other side in the competition. Statement. pic.twitter.com/18SL5Lt3n8— OptaJoe (@OptaJoe) April 26, 2023 Það virtist sem Skytturnar myndu sleppa með að vera aðeins einu marki undir en toppliðið skapaði sér ekki stakt færi í fyrri hálfleik. Þeim varð hins vegar ekki að ósk sinni en í uppbótartíma tók De Bruyne fast leikatriði sem endaði með því að John Stones stangaði boltann í netið. Stones gat loks fagnað eftir að myndbandsdómari hafði skoðað markið.EPA-EFE/ADAM VAUGHAN Flaggið fór á loft en eftir að myndbandsdómari leiksins skoðaði markið betur kom í ljós að Stones var réttstæður. Markið því bæði gott og gilt. Staðan 2-0 í hléinu og eftir aðeins níu mínútna leik í síðari hálfleik var hún orðin 3-0. Aftur skoraði De Bruyne með góðu skoti eftir sendingu frá Håland. Að þessu sinni skaut hann boltanum á milli fóta Rob Holding og leikurinn svo gott sem búinn þó enn væru rúmlega 40 mínútur til leiksloka. Téður Holding minnkaði muninn þegar fjórar mínútur voru til loka venjulegs leiktíma. Þar sem Pep Guardiola, þjálfari Man City, ákvað að láta Håland klára leikinn þá hlaut að koma að því að hann kæmi boltanum í netið. Það gerði hann þegar fimm mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma og lauk leiknum með 4-1 sigri Englandsmeistara Manchester City. Með því setti hann með í 20 liða deild en Håland hefur nú skorað 33 mörk í ensku úrvalsdeildinni. 33 - Erling Haaland has scored 33 goals in the Premier League this season, a new record in a 38-game campaign:33 - Erling Haaland (2022-23)32 - Mohamed Salah (2017-18)31 - Luis Suárez (2013-14)31 - Cristiano Ronaldo (2007-08)31 - Alan Shearer (1995-96)Predator. pic.twitter.com/DeUqs2OFiU— OptaJoe (@OptaJoe) April 26, 2023 Skytturnar eru enn á toppi deildarinnar með 75 stig en liðið hefur nú spilað fjóra deildarleiki án sigurs. Man City er með 73 stig í 2. sætinu en á tvo leiki til góða. Enski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti