Börnunum sem var rænt Sara Pálsdóttir skrifar 28. apríl 2023 18:00 193. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 Hver, sem sviptir foreldra eða aðra rétta aðilja valdi eða umsjá yfir barni, sem ósjálfráða er fyrir æsku sakir, eða stuðlar að því, að það komi sér undan slíku valdi eða umsjá, skal sæta sektum … 1) eða fangelsi allt að 16 árum eða ævilangt. Í dómi Landsréttar nr. 260/2021 var foreldri sýknað af kröfu barnaverndar Kópavogs um forsjársviptingu þar sem foreldrið hafði óskað eftir því að forsjá barnsins færðist til ömmu þess. Barnavernd gerði allt sem í þeirra valdi stóð til að koma í veg fyrir að barnið yrði vistað hjá ömmu sinni, án þess að geta gefið nokkrar skýringingar á því fyrir dómi hvers vegna. Í málinu hafði foreldrið óskað eftir því að forsjáin yrði færð til ömmu barnsins, hjá sýslumanni. Í niðurstöðu dómsins, sem staðfestur var í Landsrétti kom skýrt fram að skyldur barnaverndar lögum skv. séu þær að leita allra vægari leiða til að tryggja öryggi barns, áður en til forsjársviptingar kemur (friðhelgi einkalífs, barnasáttmálinn og meðalhóf). Í því felst m.a. sú skylda að kanna til fulls alla möguleika á að færa forsjá barns yfir til nákomins ættingja, áður en gripið er til forsjársviptingar (sjá Lrd. nr. 260/2021) . Ég hef undir höndum tölvupóst frá lögfræðingi barnaverndar Reykjavíkur, þar sem hann fullyrðir að barnavernd telji sig engar skyldur bera, til að leitast eftir því að börn séu vistuð innan fjölskyldunnar fremur en hjá ókunnugum fósturforeldrum. Mín reynsla af barnaverndarkerfinu er sú, að starfsmenn barnaverndar reyni aldrei að færa forsjá yfir til nákomins ættingja áður en farið er í forsjársviptingarmál. Starfsmenn barnaverndar gera þveröfugt, þ.e. koma gagngert í veg fyrir að foreldri færi forsjá barns yfir til nákomins ættingja. Íþeim málum sem ég hef haft aðkomu að sem lögmaður hafa sumirforeldrar farið til sýslumanns með samning um að færa forsjá barnsins eða barna sinna yfir til ömmu og afa, frænku eða frænda, til nákominna ættingja sem börnin þekkja og treysta og yrðu örugg hjá. Sem myndi valda þessum börnum sem minnstu raski og stuðla að stöðugleika, ró og virðingu fyrir friðhelgi fjölskyldunnar. Til að halda þessum börnum innan fjölskyldunnar og hjá fólki sem þau þekkja og treysta. En það hefur ekki tekist. Barnavernd gengur framhjá þessum fjölskyldumeðlimum, án skýringa eða haldbærra skýringa, og vistar börnin frekar hjá gjörókunnugu fólki, á nýju heimili, á nýjan leikskóla, í nýtt sveitarfélag, og í framhaldi eru öll tengsl barnanna við fjölskylduna slitin. Þeim er bannað að hitta afa og ömmu, mömmu og pabba, frænku og frænda. Þau fá ekki að mæta í jólaboð, afmæli eða baka piparkökur hjá ömmu um jólin. Þau fá jafnvel ekki að hitta systkini sín. Og þau hafa ekkert um það að segja hvert þau fara og fá jafnvel litlar sem engar upplýsingar um það eða hvað er að gerast. Svo eiga þessi börn bara að ,,aðlagast“. Ef börn sýna grafalvarlega vanlíðan, kvíða og streitueinkenni (sem gerist yfirleitt) á nýja heimilinu er sú vanlíðan skýrð á þann veg að ,,börnin voru að koma úr svo erfðum aðstæðum“. Ekkert innsæi inn í það gríðarlega alvarlega áfall að kúvenda öllu í lífi barnsins og útiloka það frá öllum sem þau elska og þekkja. Svo er þessi sama barnavernd að dæma foreldra fyrir að ,,hafa ekki næga innsýn inn í þarfir barna“. Hvað með þarfir þessara barna til að tengjast fjölskyldu sinni og fólkinu sem þau þekkja og elska? Eftirfarandi er sönn frásögn af tveimur málum sem voru til vinnslu hjá barnavernd Reykjavíkur. Barnavernd Reykjavíkur ákveður að fara í forsjársviptingarmál á hendur móður vegna vímuefnavanda. Eina forsjárhæfnimatið sem til var í málinu mat móður sem virkilega vel forsjárhæfa, að tengsl barnanna við móður sína væru afar sterk og náin og að það mætti alls ekki slíta þau tengsl. Eftir fall móður á vímuefnabindindi var farið í forsjársviptingarmál gegn ráðleggingum sérfræðingsins. Í ferlinu öllu og áður en farið var af stað í forsjársviptingu höfðu amma og afi barnanna, sem og langamma þeirra ítrekað óskað eftir því að fá börnin til sín. Höfðu börnin m.a. verið áður vistuð hjá þessum fjölskyldumeðlimum, en börnin bæði þekktu þau vel og voru þeim náin. Barnavernd gekk algerlega framhjá þeim. Langamman fékk þau ömurlegu svör að ,,hún væri of gömul“ þrátt fyrir að vera á þessum tíma og enn við hestaheilsu. Hin amman og afinn fengu engin svör. Síðan þá hafa þessir aðilar lítið sem ekkert fengið að hitta þessi börn. Áður en að dómsmálið um forsjársviptingu fór fyrir dóm, hafði barnavernd fengið fregnir af því að móðir hyggðist leita til sýslumanns til að færa forsjá barnanna yfir til ömmu þeirra og afa. Við því var af hálfu barnaverndar brugðist tafarlaust. Lögfræðingur barnaverndar hafði samband við yfirmann fjölskyldusviðs sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, í tölvupósti. Í tölvupóstinum kemur fram: „Barnaverndarnefnd Reykjavíkur tók á fundi sínum þann 11. júlí sl. ákvörðun um að svipta XXX kt. XXXX, forsjá barnanna X og X og hefur borgarlögmanni verið falið að krefjast þess fyrir dómstólum. Nú hafa borist upplýsingar um að móðir hyggist afsala sér forsjá til XXX, ömmu barnanna og það er ekki í samræmi við framgöngu málsins. (leturbreyting höfundar) Með vísan til 20. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 upplýsum við ykkur hér með um fyrrgreint og óskum eftir að samráð verði haft við okkur áður en afgreiðsla á slíku erindi verður klárað hjá sýslumanni.“ Forsjá móður í framhaldi svipt og börnunum komið fyrir hjá ókunnugu fólki, lengst út á landi. Nýtt fólk, nýtt heimili, nýr leikskóli, nýtt hverfi, nýtt sveitarfélag og tengsl barnanna við blóðfjölskylduna algerlega slitin. Við nánari skoðun kom í ljós að það voru a.m.k. sex aðrir nánir fjölskyldumeðlimir þessara barna sem hefðu verið tilbúnir að taka við forsjá þeirra. En þeir voru aldrei spurðir. Í hinu málinu höfðu foreldrar gert samning við föðursystur um að færa forsjá barns yfir til hennar. Hún var sjálf foreldri og hafði haft fósturbörn í vistun hjá sér áður tímabundið. Þannig hafði föðursystirin leyfi frá Barnaverndarstofu til að vera fósturforeldri. Í gögnum málsins kemur fram hvernig föðursystirin, sem þekkti barnið vel og var vel tengd því, reyndi ítrekað að fá barnavernd til að vinna með sér og leyfa barninu að vistast hjá sér. Foreldrarnir höfðu meiraðsegja farið til sýslumanns með samning þess efnis að forsjáin skyldi færð yfir til föðursysturinnar. En allt kom fyrir ekki. Barnavernd ákvað að koma barninu fyrir hjá bláókunnugri konu og í framhaldi slíta öll tengsl barnsins við fjölskylduna sína. Barnið á eldra systkini sem það þekkir ekki lengur. Barnið fær að hitta blóðföður sinn 2 sinnum á ári þrátt fyrir að hann hafi verið edrú og lifað reglusömu lífi í mörg ár og elst því upp án nokkurrar föðurímyndar. Barnið fær aldrei að hitta frænku sína, eða hitta föðurfjölskylduna. Þetta eru aðeins tvö dæmi af fjölmörgum fjölskyldum sem sundrað hefur verið, sem eyðilagðar hafa verið með ólögmætum hætti. Og það eru stjórnvöld sem fremja brotin. Að svipta foreldri eða aðra rétta aðila valdi eða umsjá yfir ólögráða barni er glæpur sem getur varðað allt að 16 ára fangelsi. Lögum samkvæmt eru þessir fjölskyldumeðlimir réttir aðilar til að hafa umsjá yfir þessum börnum. Lögmaður veltir fyrir sér hvort gerðir barnaverndar séu farnar að höggva nærri 193. gr. alm. hgl.? Fram er komin skýr krafa um heilbrigt, réttlátt barnaverndarkerfi þar sem lög og mannréttindi eru virt og virðing borin fyrir tengslum barna við fjölskyldur sínar. #Börninheim. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sara Pálsdóttir Barnavernd Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Skoðun Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun