Það eru margir sem hafa náð þeirri stöðu að vera með réttu kallaðir sérfræðingar í silungsveiði en þeirri nafnbót fylgir ítarleg nálgun á bráðinni sem og ástundun sem telur ekki dögum haldur fleiri vikum við bakkann á sumrin. Það er síðan ánægjulegt þegar sumir af þessum bestu silungsveiðimönnum landsins skella í námskeið.
Ólafur Ágúst Haraldsson og Hrafn Ágústsson (Caddisbræður) og Ólafur Tómas Guðbjartsson (Dagbók urriða) hafa verið með námskeið á höfuðborgarsvæðinu í vetur og í vor en núna halda þeir norður yfir heiðar í samstarfti við Stangaveiðifélag Akureyrar og skella í námskeið næstu helgi. Hér fyrir neðan er tilkynning frá SVAK. Veiðivísir mælir klárlega með þessu!
Ágætu félagsmenn !
Fyrirhugað er að halda þetta námskeið fyrir norðan 20 maí ef næg þátttaka fæst. (Lágmark 20 manns). Ennþá laus pláss.
Nánar hér fyrir neðan:
Silungur frá A - Ö
Þetta skemmtilega námskeið sem er á fyrirlestraformi gefur áhugaverða innsýn á mörg spennandi sjónarhorn silungsveiða og hentar bæði byrjendum sem lengra komnum.
Kennarar eru: Ólafur Ágúst Haraldsson og Hrafn Ágústsson (Caddisbræður) og Ólafur Tómas Guðbjartsson (Dagbók urriða).
Námskeiðsdagur 20.maí kl 13-18 í Hamri félagsheimili Þórs á Akureyri
Almennt verð: 14.900 kr, félagsmenn SVAK 11.000 kr.
Skráning á svak@svak .is með nafni,kennitölu og símanúmeri.
Lágmarksfjöldi á námskeiðið er 20 manns.