Shriver sótti um skilnað árið 2011 þegar í ljós kom að Schwarzenegger hafði haldið framhjá henni með húshjálp þeirra, Mildred Patricia Baena. Schwarzenegger hafði gert Baena ólétta fyrir það og eignaðist hún drenginn Joseph Baena, sem er í dag 25 ára gamall.
Skilnaðurinn var því stormasamur eða „mjög, mjög erfiður í upphafi“ eins og Schwarzenegger orðar það sjálfur í viðtali við Hollywood Reporter.
Schwarzenegger og Shriver eiga saman fjögur börn, hann segir að þau hafi passað upp á að láta þau ekki finna fyrir skilnaðinum. Þrátt fyrir að það hafi gengið mikið á þeirra á milli hafi þau haldið saman upp á páskana, jólin, afmæli og fleira.
„Við erum mjög góðir vinir og erum mjög náin. Við erum mjög stolt af því hvernig við ólum upp börnin okkar,“ segir Schwarzenegger. „Ef það væru gefin Óskarsverðlaun fyrir hvernig unnið er úr skilnaði ættum við Maria að fá þau fyrir að láta hann hafa sem minnst áhrif á börnin.“