Miami Heat kom inn sem áttunda hæsta lið Austurdeildarinnar í úrslitakeppnina í ár af átta liðum og þurfti að fara í gegnum tvær umferðir af umspilinu til að komast inn.
Miami tapaði fyrst fyrir Atlanta Hawks í baráttu um sjöunda sætið en náði að tryggja sér áttunda sætið með 102-91 sigri á Chicago Bulls.
Los Angeles Lakers er einnig enn á lífi í úrslitakeppninni þrátt fyrir að hafa líka komist inn í úrslitakeppnina í gegnum umspilið.
Spoelstra: Play-in best thing for NBA in decade https://t.co/1FkHLFazZM pic.twitter.com/DYnTe1guFf
— ESPNBoston (@ESPNBoston) May 18, 2023
Spoelstra er mjög ánægður með breytinguna á úrslitakeppninni með tilkomu umspilsins en það þýðir að við lok deildarkeppninnar eiga liðin í níunda og tíunda sæti enn möguleika á því að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni.
Spoelstra segir líka að liðið sitt hafi haft mjög gott af því að fara í gegnum umspilið en Miami hefur síðan slegið út Milwaukee Bucks 4-1 og New York Knicks 4-2.
Erik Spoelstra talaði mjög vel um umspilið á blaðamannafundi fyrir annan leik Miami og Boston Celtics í úrslitum Austurdeildarinnar.
„Það eru færri lið í deildinni sem eru að ‚tanka' og allir eru að berjast um þessi tvö lausu sæti. Allir leikirnir í umspilinu eru skylduáhorf og þannig var það í báðum deildum. Ég held því að þetta sé líklega það besta sem hefur gerst fyrir NBA síðasta áratuginn,“ sagði Spoelstra.
„Þetta var blessun fyrir mitt lið að fá þessa umspilsleiki og þurfa að fara saman í gegnum það. Ég hafði ekki áður verið þátttakandi í svona deildarkeppni áður og mér fannst við allir vaxa og verða betri að klára umspilið. Þetta herti okkur, þjappaði okkur saman og í liðinu varð til þessi þrautseigja og kjarkur sem þarf til ef þú ætlar að ná langt í úrslitakeppninni,“ sagði Spoelstra.
Miami Heat vann fyrsta leikinn 123-116 í Boston en liðin mætast aftur í kvöld og verður leikurinn sýndur beint á Stöð 2 Sport 2. Útsendingin hefst klukkan hálf eitt.
Heat coach Erik Spoelstra praised the NBA s play-in tournament as he discussed the journey that prepared Miami for its playoff run https://t.co/evgjm7afGa
— Sports Illustrated (@SInow) May 18, 2023

NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.