Brjálaður eftir tapið fyrir Miami: „Fjandakornið, vörnin þarf að vera miklu betri“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. júní 2023 13:30 Michael Malone lét gamminn geysa eftir tap Denver Nuggets fyrir Miami Heat í nótt. getty/Matthew Stockman Michael Malone, þjálfari Denver Nuggets, lét sína menn heyra það eftir að þeir töpuðu fyrir Miami Heat, 108-111, í öðrum leik liðanna í úrslitum NBA-deildarinnar í körfubolta.
Denver var átta stigum yfir fyrir 4. leikhluta en fékk á sig 36 stig í honum og tapaði leiknum. Staðan í einvíginu er jöfn, 1-1, en næstu tveir leikir eru á heimavelli Miami. „Tölum um framlag,“ sagði foxillur Malone eftir leikinn í nótt. „Þetta eru NBA-úrslitin. Við erum að tala um framlag. Það er mitt aðal áhyggjuefni. Þið hélduð eflaust að ég hafi verið að búa til einhverja sögu þegar ég sagði að við hefðum ekki spilað vel í fyrsta leiknum. Við gerðum það ekki.“ Malone var sérstaklega ósáttur við 4. leikhlutann sem Denver tapaði með ellefu stigum, 36-25. „Þeir byrjuðu 4. leikhlutann 13-2 og þá fórum við út af sporinu. Þeir fengu allt sem þeir vildu, hvort sem það voru þriggja stiga skot eða sniðsskot, og það gerði þeim kleift að sitja aftur í svæðisvörninni sinni, hægja á leiknum, við náðum ekki stoppum og áttum svo erfitt með að skora hinum megin,“ sagði Malone. „Fjandakornið, vörnin þarf að vera miklu betri. Vörnin hefur ekki verið til staðar í 4. leikhluta í fyrstu tveimur leikjunum.“ Þriðji leikur Miami og Denver fer fram aðfaranótt fimmtudags.
NBA Mest lesið Sigursteinn barðist við tárin Handbolti „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn Handbolti „Það er algjör geðbilun að spila í þessum hita“ Sport Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Handbolti Carlsen í neðsta sæti í Noregi Sport Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Handbolti Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Handbolti Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Íslenski boltinn Emil Barja tekur við Stjörnunni Körfubolti Vilja ráða Iraola eða Lampard Enski boltinn Fleiri fréttir Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Gáfu miðann sinn og misstu af Grindavík verða Íslandsmeistari Mætti brjálaður til leiks eftir að hafa misst af verðlaunum Sjáðu öll tilþrif Pargo: „Aldrei séð annað eins á fjölum á Íslandi“ „Stjörnufólk er pirrað“ Ól upp dólg í nýkrýndum Íslandsmeisturum Sjá meira