Atvinnulíf

Fjárhagsáhyggjur fólks hafa bein áhrif á vinnuna

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Greiðsluvandi eða áhyggjur af fjárhag hafa mikil áhrif á það hvernig okkur gengur í vinnunni. Samskiptavandi getur aukist og kannanir sýna að starfsfólk telur peningaáhyggjur hafa bein áhrif á afköstin þeirra í vinnunni.
Greiðsluvandi eða áhyggjur af fjárhag hafa mikil áhrif á það hvernig okkur gengur í vinnunni. Samskiptavandi getur aukist og kannanir sýna að starfsfólk telur peningaáhyggjur hafa bein áhrif á afköstin þeirra í vinnunni. Vísir/Getty

Stýrivaxtahækkanir, verðbólga, greiðsluvandi fólks og erfiðleikar framundan eru allt fréttir sem hafa verið fyrirferðarmiklar í fréttum fjölmiðla undanfarið. 

Búast má við erfiðum tíma framundan segir seðlabankastjóri.

Kannski erfið mánaðarmót nú þegar?

Allt þetta hefur áhrif á það hvernig okkur líður og gengur. Því rannsóknir sýna að það að hafa fjárhagsáhyggjur, hefur bein áhrif á það hvernig okkur gengur í vinnunni.

Könnun sem gerð var í Bretlandi sýnir að 80% fólks á vinnumarkaði í Bretlandi telur fjárhagsáhyggjur hafa bein áhrif á heilsu þeirra og neikvæð áhrif á afköstin þeirra í vinnunni.

Ef litið er til þess hóps sem rekur heimili og er með börn, hækkar þetta hlutfall í 88%.

Ekki er ólíklegt að sambærilegar niðurstöður megi yfirfærast á fleiri samfélög.

Að ræða fjárhagsáhyggjur sínar og líðan vegna hennar er hins vegar eitthvað sem fæstum finnst auðvelt. Þannig segja niðurstöður að 66% starfsfólks finnist óþægilegt að ræða áhyggjur sínar eða greiðsluvanda við vinnuveitanda.

Könnunin var gerð af breska rannsóknarfyrirtækinu YouGov í fyrra og þátttakendur voru 1000 manns.

Í viðtali Atvinnulífsins við Hauk Sigurðsson sálfræðing á tímum heimsfaraldurs, segir Haukur  áhrif þess að hafa peningaáhyggjur geta verið miklar og alvarlegar.

Með aukinni fjárhagslegri streitu, aukast líkur á samskiptavandamálum, bæði á vinnustað en einnig í persónulega lífinu. 

Álagið getur verið mikið á hjónabandið. 

Auknar líkur eru á heimilisofbeldi og skilnuðum sömuleiðis.“

Þá segir Haukur fjárhagsáhyggjur geta haft áhrif á sjálfsmatið okkar sem minnkar, myndað kvíða, aukið á svartsýni, þunglyndis og reiði.

Heilsubrestir eins og höfuðverkur, magaverkur og svefnleysi geta einnig verið fylgifiskar þess að vera í greiðsluvanda eða með áhyggjur af peningum.

Viðtalið við Hauk má sjá hér.


Tengdar fréttir

Z kyn­slóðin er allt öðru­vísi en eldri kyn­slóðir og mun breyta öllu

„Við þurfum alltaf að taka samtalið. Við þurfum alltaf að passa að vera í samráði við unga fólkið því að þau munu breyta öllu. Z kynslóðin, sem nú er 10 til 27 ára, er kynslóð sem er allt öðruvísi en kynslóðin sem er ríkjandi stjórnendahópur í dag,“ segir Anna Steinsen einn eigandi KVAN.

Kulnun eftir Covid áberandi hjá 18-24 ára og sölu- og markaðsfólki

„Það sem gerir niðurstöðurnar fyrir 18 til 24 ára sláandi er hversu mikil breyting er á milli ára. Kulnun hjá þessum aldurshópi mælist 6 til 7% fyrir og í Covid en eykst hratt og mælist 17% eftir Covid. Sú starfsgrein þar sem kulnun mælist líka mjög há er til dæmis hjá sölu- og markaðsfólki,“ segir Trausti Heiðar Haraldsson framkvæmdastjóri Prósent.

Fómó í vinnunni er staðreynd

Fómó er nýtt hugtak sem sérstaklega ungt fólk notar en þetta orð er tilvísun í skammstöfun á ensku; Fomo, sem stendur fyrir „fear of missing out.“

Að vera kvíðin yfir því að verða kvíðin

Við erum alla daga að kljást við að vera okkar besta útgáfa. Það er alltaf draumurinn: Að líða vel, vera kát, ganga vel í vinnu og einkalífi. Hljómar kannski auðvelt en svo margt í dagsins amstri getur verið streituvaldandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×