„Þessi hugmynd hefur verið að malla hjá okkur í langan tíma. Snemma árs tókum við svo loksins ákvörðun um að kýla á þetta. Við búum bæði tvö yfir gríðarlega mikilli reynslu á okkar sviðum, Sigrún sem fyrirsæta og Sonny sem tónlistarmaður. Þess vegna langar okkur mikið til þess að hjálpa fólki með sína ferla og svo er líka svo gaman að byggja upp eitthvað stórkostlegt saman,“ segir parið.

Nauðsynlegt að temja sér aga
Sigrún Eva hefur starfað sem fyrirsæta frá árinu 2009 og býr að mikilli reynslu í þeim heimi. Hún hefur sem dæmi unnið með stórfyrirtækjum á borð við Victoria’s Secret, Adidas, Helmut Lang, Alexander Wang, Nordstrom, Saks og Elizabeth & James ásamt því að hafa gengið tískupallinn fyrir tískurisa á borð við Oscar De La Renta.
„Ég vann mest í New York þar sem ég kynntist verklagi og svona prófessionalisma á öðru stigi. Til að ganga vel í þessum bransa þarf að temja sér mikinn aga og ég var heppin að eiga, og á enn, frábært samband við umboðsmennina mína sem ég áttaði mig á að er eiginlega lykillinn að góðum frama í þessum bransa,“ segir Sigrún og bætir við:
„Ég fékk þar af leiðandi að kynnast því hvernig hin hliðin virkar einna best og bar alltaf mikla virðingu fyrir því starfi sem minn umboðsmaður vann fyrir mig. Ég hef svo oft hugsað til þess að það væri gaman að prófa vera í þeirri stöðu einn daginn, að hjálpa öðrum byrja sinn feril og fylgja þeim í gegnum allt.“

Vann með stórum tónlistamönnum úti í heimi
Sonny, sem notast við listamannsnafnið Snny, kemur úr tónlistarheiminum og á að baki sér langan feril þar sem hann hefur komið fram víða um heim. Hann er nú starfræktur á Íslandi, hefur gefið út fjöldann allan af lögum og kom meðal annars fram á Iceland Airwaves hátíðinni í fyrra.
„Ég fékk að vinna með einum af stærstu tónlistamönnum og tónlistarfyrirtækjum í heimi þegar ég var í kringum tvítugsaldurinn. Það reyndist mér gott veganesti inn í lífið, þar sem ég öðlaðist dýpri skilning á því hvernig er best að fóta sig í viðskiptaheiminum sem sjálfstætt starfandi listamaður,“ segir hann.

Sterk tenging til Bandaríkjanna, Evrópu og Afríku
Parið segir að markmið Grounded sé að byggja hvert annað upp og byggja brýr milli fólks, fjölbreyttra sköpunargreina og staða.
„Við bæði, sem og aðrir sem koma að Grounded, höfum sterkar tengingar til Bandaríkjanna, Evrópu og Afríku sem við höldum að geti skapað spennandi tækifæri fyrir alla sem vinna með okkur.“

Þau segja íslenskt menningarlíf á spennandi stað í dag og það sé skemmtilegt að fylgjast með stöðugri þróun.
„Með komu okkar og annarra spennandi verkefna sem eru í gangi eigum við vonandi eftir að sjá enn meira af hæfileikaríku fólki fá platform og pláss í senunni.
Sem fólk sem hefur starfað sjálfstætt innan skapandi greina viljum við að umboðsskrifstofan okkar sé öruggt rými fyrir annað skapandi fólk. Við vonum að þetta geti byggt upp samfélag og endurskilgreint hvernig hefðbundin umboðsskrifstofa virkar.
Við viljum ýta undir aukna samvinnu í bransanum og þar af leiðandi minnka afmarkaða og viðskiptalega nálgun á bransann.“
Ólíkir listmiðlar
Umboðsskrifstofan ætlar sem áður segir að tengja saman ólíka hópa skapandi fólks.
„Við verðum með alls konar ólíkar starfstéttir á skrá hjá okkur. Tónlistarfólk, fyrirsætur, ljósmyndara, förðunarfræðinga, stílista og fleira. Síðastliðinn sunnudag vorum við svo með fyrstu myndatökuna á vegum Grounded þar sem við mynduðum okkar kjarna teymi sem við komum til með að vinna náið með.
Við ætlum ekki að fara of geyst af stað heldur byrja rólega og stækka út frá því. Vefsíðan okkar fer vonandi í loftið á næstu vikum og þá verður hægt að hafa samband ef fólk hefur áhuga á að sækja um að vera með,“ segir Sigrún Eva að lokum.