„Garnlínan okkar byggir á áratuga reynslu í prjónahönnun en margir muna eflaust eftir vinsælum vélprjónuðum peysum Icewear frá áttunda og níunda áratug síðustu aldar,“ segir Alma Ragnarsdóttir, verslunarstjóri Icewear Garn. „Til viðbótar við nýja hönnun í bland við yfirfærslu eldri uppskrifta hefur Icewear keypt höfundarrétt uppskrifta frá Lopa og Bandi, en stefnt er að því að gefa út á annað hundrað uppskrifta.“

Icewear Garn býður upp á alls fimmtán gerðir handprjónabands auk fylgihluta. „Icewear garnlínan er afar fjölbreytt með bandi úr ull, hreinni merino ull, alpaca og alpaca silki, bambus, bómul og mohair. Litapallettan er stórglæsileg og hefur vakið mikla hrifningu viðskiptavina enda inniheldur hún milda jarðliti í bland við bjarta og skæra tóna.“

Mikil áhersla er lögð á úrval stakra uppskrifta á íslensku, en í búðinni eru fjölmörg prjónuð sýnishorn, peysur og garnprufur, sem sýna mismunandi útfærslur í bandinu segir Alma. „Í versluninni er góð aðstaða til að tylla sér niður, blaða í uppskriftum og sækja sér innblástur í næstu prjónaverkefni. Sjón er sögu ríkari!“

Hún segir starfsfólk garnbúðarinnar vera með sérþekkingu á handprjóni og hekli og aðstoði viðskiptavini við val á verkefnum og garni. „Enda er kjörorð verslunarinnar framúrskarandi þjónusta, fjölbreytt úrval og gott vöruverð.“
Garnverslunin í Fákafeni er björt og rúmgóð en hún stendur við hlið Icewear verslunarinnar sem býður upp á fjölbreytt úrval útivistarfatnaðar. „Þetta eru aðskildar einingar en þó er opið á milli þeirra sem er einstaklega þægilegt fyrir viðskiptavini beggja verslana. Það er stutt síðan Icewear setti á fót nýja barnadeild í Fákafeninu og því má segja að þar megi finna eitthvað fyrir alla fjölskylduna.“ Gott aðgengi er að verslununum og næg bílastæði.

Verslunin er opin alla daga vikunnar og fram undan eru spennandi viðburðir, til dæmis prjónakaffi, samprjón, námskeið og kynningar segir Alma. „Svo má ekki gleyma opnunarhátíðinni sem haldin verður í versluninni í dag, fimmtudaginn 22. júní. Hún stendur yfir frá kl. 17-20 þar sem boðið verður upp á léttar veitingar, sértilboð á garni í bland við óvænta glaðninga.“

Nánari upplýsingar á iceweargarn.is.