Enski boltinn

Arteta ekki búinn að ákveða hvar hann ætlar að nota Kai Havertz

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kai Havertz lék sinn fyrsta leik með Arsenal í gær þegar hann kom inn á sem varamaður í æfingarleik á móti þýska liðinu Nürnberg.
Kai Havertz lék sinn fyrsta leik með Arsenal í gær þegar hann kom inn á sem varamaður í æfingarleik á móti þýska liðinu Nürnberg. Getty/Alex Grimm

Þegar þú eyðir meira en ellefu milljörðum í leikmann þá er eins gott að vita hvernig þú ætlar að nota hann. Knattspyrnustjóri Arsenal ætlar þó ekki að flýta sér að komast að því.

Arsenal eyddi 65 milljónum punda í þýska landsliðsmanninn Kai Havertz í sumar en hann kemur frá nágrönnunum í Chelsea.

Margir hafa verið að velt fyrir sér hvar Havertz muni spila í Arsenal liðinu og kannski skiljanlega því knattspyrnustjórinn Mikel Arteta veit það ekki sjálfur. Breska ríkisútvarpið segir frá.

Arteta segir að hann þurfi tíma til að ákveða það hvar hann notar Havertz. Stjórinn segir að það megi ekki líta á það þanig að Havertz sé að ganga inn í hlutverk Granit Xhaka.

Havertz kom inn á sem varamaður í fyrsta leiknum með Arsenal í gær þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Nürnberg í æfingarleik.

„Við verðum að sjá til hvernig hann aðlagast liðinu og við þurfum líka að kynnast betur og þróa okkar samband,“ sagði Mikel Arteta eftir leikinn.

„Fótbolti snýst um það að tíminn mun leiða það í ljós hvar hann passar best inn í liðið,“ sagði Arteta.

Kai Havertz er fjölhæfur leikmaður sem getur spilað á miðjunni en líka sem fremsti maður. Hans besta staða er að flestra mati fyrir aftan fremsta mann.

Það er mikið að leikmönnum í Arsenal liðinu sem geta spilað í kringum fremsta mann og svo er Norðmaðurinn bestur framarlega á miðjunni. Það verður því fróðlegt að sjá hvaða stöðu Havertz spilar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×