Janus Daði mætti ekki á æfingu Kolstad Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. júlí 2023 10:29 Janus Daði Smárason í leik með íslenska landsliðinu á HM í handbolta í janúar. vísir/vilhelm Samkvæmt upplýsingum TV 2 í Noregi mætti Janus Daði Smárason ekki á fyrstu æfingu undirbúningstímabilsins hjá Kolstad.
Norsku meistararnir eiga í miklum fjárhagserfiðleikum og leikmenn og starfsfólk Kolstad hafa verið beðin um að taka á sig launalækkun. Tveir íslenskir landsliðsmenn leika með Kolstad, Sigvaldi Guðjónsson og Janus Daði Smárason. Sá síðarnefndi hefur verið orðaður við Evrópumeistara Magdeburg. Í umfjöllun TV 2 um ástandið hjá Kolstad segir að Janus Daði hafi ekki mætt í læknisskoðun þegar undirbúningstímabilið hófst í dag. „Þetta er ferli milli Janusar og félagsins. Við sitjum hér og erum svolítið spenntir að sjá hverjir mæta. Hingað til hefur mætingin verið góð,“ sagði Stian Gomo Nilsen sem er í þjálfarateymi Kolstad. Hann vísaði annars á Janus eða Jostein Sivertsen, eiganda Kolstad. Janus gekk í raðir Kolstad í fyrra og varð þrefaldur meistari með liðinu á síðasta tímabili. Hann var valinn í úrvalslið norsku úrvalsdeildarinnar. Gísli Þorgeir Kristjánsson, aðalleikstjórnandi Magdeburg, er meiddur og verður varla meira með liðinu á árinu og því vantar Evrópumeistarana staðgengil fyrir hann. Þeir hafa því horft til landa hans og félaga í íslenska landsliðinu.
Norski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Íslenski boltinn Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira
Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Íslenski boltinn
Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Íslenski boltinn