Handtekinn fyrir að krota á nýbygginguna við Alþingishúsið Hólmfríður Gísladóttir skrifar 19. júlí 2023 07:06 Maðurinn freistaði þess að stinga lögreglu af en án árangurs. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann í gær sem var að krota á nýbygginguna við Alþingishúsið. Þegar lögregla hugðist ræða við manninn tók hann af stað en náðist eftir stutta eftirför.
Kannabisefni fundust á manninum og var hann fluttur á lögreglustöð. Lögregla handtók einnig konu í miðborginni sem freistaði þess að hlaupa á brott með vörur sem hún hafði tekið ófrjálsri hendi úr verslun einni. Lögreglumenn sem voru að sinna öðru verkefni sáu starfsmann veita konunni eftirför og tókst að stöðva hana. Konan var mjög ölvuð og neitaði að gefa upp persónuupplýsingar, auk þess sem hún reyndi að stinga lögreglu af þegar rætt var við hana. Hún var færð á lögreglustöð en sleppt að lokinni skýrslutöku. Einn var stöðvaður í umferðinni þar sem hann var enn á nagladekkjum og annar fyrir of hraðan akstur, auk þess sem viðkomandi reyndist ekki hafa gild ökuréttindi. Þá var tilkynnt um þjófnað í Kópavogi og mögulega fíkniefnasölu úr bifreið í sama sveitarfélagi en meintur fíkniefnasali var handtekinn þar sem hann reyndist hafa brotið gegn lögum um útlendinga með því að vera of lengi inni á Schengen-svæðinu. Annar útlendingur var handtekinn vegna gruns um brot á fíkniefnalöggjöfinni en hann var með á sér nokkuð magn af kannabisi í sölueiningum. Sá reyndist einnig hafa brotið gegn lögum um útlendinga og gat hvorki framvísað persónuskilríkjum né upplýst um tilgang dvalar sinnar hérlendis.
Lögreglumál Alþingi Reykjavík Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sjá meira