Al-Hilal bauð Paris Saint-Germain 259 milljónir punda í Mbappé sem vill fara frá frönsku meisturunum. Ef Mbappé færi til Sádi-Arabíu yrði hann dýrasti leikmaður fótboltasögunnar.
Mbappé virðist þó sjálfur ekki hafa mikinn áhuga á að fara til Al-Hilal og Antetokounmpo gerði sér mat úr því á samfélagsmiðlum.
„Al-Hilal þið getið fengið mig. Ég lít út eins og Kylian Mbappé,“ skrifaði Antetokounmpo í færslu sinni.
Al Hilal you can take me. I look like Kylian Mbappe pic.twitter.com/VH0syez3VX
— Giannis Antetokounmpo (@Giannis_An34) July 24, 2023
Mbappé hafði greinilega gaman að þessu uppátæki Antetokounmpos og endurbirti færslu hans með haug af tjáknum.
— Kylian Mbappé (@KMbappe) July 24, 2023
Samkvæmt frétt Relevo hefur Mbappé engan áhuga á að spila í Sádi-Arabíu, öfugt við margar aðrar stjörnur sem hafa flykkst þangað á undanförnum vikum og mánuðum.
Samningur Mbappés við PSG rennur út næsta sumar og hann vill klára hann og fara svo til Real Madrid. PSG vill þó eðlilega ekki missa sína skærustu stjörnu frítt og reynir því að selja Mbappé.