Í síðustu viku gaf Húsnæðis- og mannvirkjastofnun út að vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hefði lækkað um 1,1 prósent milli mánaða. Fasteignasali sem fréttastofa hefur rætt við segir markaðin í heildina fremur stabílan.
„Hann hefur hækkað um 2,7 prósent á síðustu 12 mánuðum og við erum að búast við því að það eru að seljast 400-500 eignir á mánuði að meðaltali á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Páll Pálsson fasteignasali.
Markaðurinn sé að færast nær því að verða kaupendamarkaður, en á fyrri helmingi þessa árs voru gerðir 4.838 kaupsamningar á landinu. Á sama tíma á síðasta ári voru þeir 6.485.
„Það eru klárlega meiri tækifæri og meira framboð fyrir kaupendur núna. Það eru kannski auglýstar í kringum 2.000 eignir inni á markaðnum, sem voru á tímabili kannski 3-500. Þar af leiðandi er verðið kannski ekki að hækka eins mikið og þau gerðu á sínum tíma, þegar framboðið var ekkert.“
Vaxtalækkanir og verðhækkanir
Útlit sé fyrir að markaðurinn haldist í svipuðu horfi út næsta ár.
„Ég hef svona meiri áhyggjur af því hvað gerist 25/26, þegar flestir greiningaraðilar spá því að vextir muni lækka fyrir þann tíma,“ segir Páll.
Á móti vaxtalækkunum þurfi að byggja mun fleiri íbúðir en nú, til að koma í veg fyrir miklar hækkanir á markaðnum.
Heldurðu að það sé raunhæft, að framboðið verði orðið nóg?
„Því miður, ég er ekki mjög bjartsýnn á það. Maður sér það er verið að byggja uum 2.800 íbúðir núna, sem verða afhentar á þessu ári. Það er bara ekki nóg miðað við þá fólksfjölgun sem er að eiga sér stað undanfarna eitt og hálft ár, og það sem fram undan er.“