Þrír nýir leikmenn Arsenal voru í byrjunarliðinu í dag og þar á meðal 100 milljón punda maðurinn Declan Rice. Hjá City var Mateo Kovacic mættur í liðið en hann kom frá Chelsea í sumar.
Fyrri hálfleikur var litlaus og leiðinlegur og það var lítið að gerast í síðari hálfleik þegar loksins kviknað líf.
Þá átti hinn 21 árs gamli Cole Palmer frábært skot utan teigs sem flaug fallega í fjærhornið. 1-0 og stundarfjórðungur eftir af leiknum.
Arsenal náði aldrei að ógna marki City að neinu viti sem eftir lifði en í blálok uppbótartímans náði Arsenal að jafna. Hættulítið skot Trossard í teignum hafnaði í Akanji og lak þaðan í netið. Því varð að grípa til vítaspyrnukeppni.
Arsenal þurfti aðeins fjórar spyrnur til þess að klára dæmið. Skoruðu úr öllum sínum en Kevin de Bruyne og Rodrigo klúðruðu fyrir City.