Ríkasti Finninn, sjóður Paul Gettys og Sequoia fjárfestu í vísisjóði Ara og Davíðs
Á meðal fjárfesta í vísisjóði á sviði loftlagsmála sem bræðurnir Ari og Davíð Helgasynir stofnuðu eru J. Paul Getty Trust, ríkasti maður Finnlands og stofnandi finnska leikjafyrirtækisins Supercell sem gaf meðal annars út Clash of Clans. Að auki fjárfesti vísisjóður á vegum Sequoia Capital, einu þekktasta fjárfestingafélagi í heimi þegar kemur að styðja við nýsköpunarfélög, í Transition.