Youtube-stjarnan Logan Paul hefur keppt í fjölbragðaglímu síðustu misserin en er á leið í hnefaleikahringinn innan skamms þar sem hann mun keppa í hnefaleikum í fyrsta sinn í um tvö ár.
Mótherji hans í hringnum verður Dillon Danis en hann er líklega þekktari fyrir að vera æfingafélagi Conor McGregor heldur en fyrir afrek sín í íþróttinni. Á dögunum tjáði McGregor sig um bardagann sem fer fram þann 14. október.
„Ég hef þekkt Dillon í mörg ár og æft með honum lengi. Ég hef leitt hann áfram. Ég mun þjálfa hann og ég ábyrgist að hann mun vinna, vonandi mætir Paul,“ sagði fyrrum UFC-meistarinn við Matchroom Boxing.
Vitaskuld ætlar Logan Paul ekki að sitja undir þessum ummælum McGregor án þess að leggja orð í belg. Hann birti innlegg á X þar sem hann skorar á McGregor í veðmáli og segist vera tilbúinn að leggja eina milljón dollara undir á eigin sigur.
You guarantee a win? I ll bet you $1,000,000 I beat Dildo Danis on October 14 @TheNotoriousMMA pic.twitter.com/cktDrH6jWa
— Logan Paul (@LoganPaul) August 14, 2023
„Sýndu nú hvað þú ert sjálfsöruggur. Pældu í því hvað þú gætir keypt mikið kókaín, dópistinn þinn. Þann 14. október, þá rústa ég ykkur báðum,“ sagði Paul í myndbandi á X en oft á tíðum hefur meint eiturlyfjaneysla McGregor verið til umræðu.
Bardagi Paul og Danis fer fram í Manchester áður en KSI mætir Tommy Fury í aðalbardaga kvöldsins.