Fótbolti

Everton-menn kjöldregnir á Villa Park

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Leon Bailey skoraði og lagði upp fyrir Aston Villa.
Leon Bailey skoraði og lagði upp fyrir Aston Villa. Michael Regan/Getty Images

Aston Villa vann afar öruggan 4-0 sigur er liðið tók á móti Everton í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Það var John McGinn sem kom heimamönnum yfir með marki á 18. mínútu leiksins eftir stoðsendingu frá Leon Bailey áður en Douglas Luiz bætti öðru marki liðsins við sex mínútum síðar. Luiz skoraði þá á miklu öryggi af vítapunktinum eftir að Jordan Pickford braut á Ollie Watkins innan vítateigs.

Leon Bailey bætti svo þriðja marki Aston Villa við snemma í síðari hálfleik áður en varamaðurinn Jhon Duran rak síðasta naglann í kistu gestanna á 75. mínútu með sinni fyrstu snertingu í leiknum.

Niðurstaðan því öruggur 4-0 sigur Aston Villa sem nú er með þrjú stig eftir fyrstu tvær umferðir úrvalsdeildarinnar, en Everton er enn án stiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×