West Ham gerði góða ferð suður til Brighton í dag og vann 3-1 sigur á American Express-leikvellinum í dag. West Ham er taplaust í ensku úrvalsdeildinni eftir þrjár umferðir.
James Ward-Prowse hefur sannarlega reynst West Ham dýrmætur eftir að hann gekk til liðs við félagið frá Southampton í þann mund sem tímabilið var að hefjast. Hann skoraði fyrsta markið í dag eftir sendingu frá Michael Antonio og Jarrod Bowen kom West Ham í 2-0 á 58. mínútu.
West Ham United:
— talkSPORT (@talkSPORT) August 26, 2023
Lost Declan Rice
Lost Gianluca Scamacca
Lost Manuel Lanzini
Top of the league after three games pic.twitter.com/TXRH1W8haL
Michael Antonio skoraði síðan þriðja markið fimm mínútum síðar og sigurinn svo gott sem í höfn. Pascal Gross náði að minnka muninn á 81. mínútu og þrátt fyrir nokkra pressu undir lokin náðu leikmenn Brighton ekki að koma boltanum í netið.
Lokatölur 3-1 og lærisveinar David Moyes nú með sjö stig eftir fyrstu þrjár umferðir deildarinnar og er komið í efsta sætið um stundarsakir að minnsta kosti. Þetta var hins vegar fyrsta tap Brighton sem er í fjórða sæti deildarinnar.