Umdeild afsökunarbeiðni vegna enn umdeildari bréfa Kristín Ólafsdóttir skrifar 10. september 2023 23:00 Ashton Kutcher og Mila Kunis biðjast afsökunar. Þau kynntust við tökur á That 70's Show, þar sem Danny Masterson fór einnig með hlutverk. Leikarahjónin Mila Kunis og Ashton Kutcher hafa sætt harðri gagnrýni nú um helgina eftir að meðmælabréf sem þau skrifuðu um leikarann Danny Masterson voru birt. Masterson var á fimmtudag dæmdur í þrjátíu ára fangelsi fyrir nauðgun.
Kviðdómur sakfelldi Masterson í maí síðastliðnum fyrir að hafa nauðgað tveimur konum í kringum aldamót. Það var svo ekki fyrr en nú rétt fyrir helgi sem dómurinn yfir Masterson var kveðinn upp. Masterson, Kutcher og Kunis léku í sjónvarpsþáttunum That 70's Show og urðu góðir vinir meðan á tökum þáttanna stóð. Eftir dómsuppkvaðninguna á fimmtudag kvisaðist út að Kutcher og Kunis hefðu skrifað meðmælabréf fyrir Masterson, sem skilað var inn til dómara í málinu. Bréf af þessu tagi eru gjarnan send til dómara í dómsmálum vestanhafs. Dómarinn getur tekið bréfin til greina við ákvörðun refsingar yfir sakborningum. Bréf Kutchers og Kunis voru skrifuð eftir að Masterson var sakfelldur en áður en refsing hans var ákvörðuð. Bréfin voru loks birt á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum vestanhafs um helgina. Sannsögull og stundvís Auk Kutchers og Kunis sendu um fimmtíu vinir og skyldmenni Mastersons meðmælabréf til dómarans. Hjónin eru þó óumdeilanlega langfrægust meðmælenda, auk þess sem þau hafa gert mjög út á baráttu gegn kynlífsþrælkun og kynferðisbrotum gegn börnum síðustu ár. Það er því kannski ekki að undra að bréf þeirra hafi vakið sérstaka eftirtekt. Hjónin fara í bréfum sínum fögrum orðum um Masterson og votta um manngæsku hans, ráðvendni og iðjusemi. Kutcher lýsir Masterson sem góðum vini og fyrirmynd, sannsöglum með eindæmum - og nefnir jafnframt sérstaklega að Masterson hafi ávallt verið stundvís. Bæði bréfin má lesa í heild hér. Umsagnir hjónanna um Masterson hafa reitt marga til reiði. Þau hafa sætt harðri gagnrýni á samfélagsmiðlum fyrir að styðja dæmdan nauðgara. Þá hafa netverjar margir bent á að þó að menn séu gæddir jákvæðum eiginleikum séu þeir fullfærir um að nauðga. Hið gagnstæða megi lesa úr bréfum Kutcher og Kunis. I read the letters from Ashton Kutcher, Mila Kunis, Debra Jo Rupp, Giovanni Ribisi, and Billy Baldwin, and the take away is this:A man can be an extraordinary father, friend, and colleague and still be a rapist. And a rapist often hides that side of himself from others.— Chanda Prescod-Weinstein (@IBJIYONGI) September 8, 2023 Það var svo í gær sem hjónin fundu sig knúin til að biðjast afsökunar á meðmælaskrifunum í sameiginlegri yfirlýsingu á Instagram-reikningi Kutchers. Sýnt var úr afsökunarbeiðninni og meðmælabréfi Kutchers í kvöldfréttum Stöðvar 2. Kutcher og Kunis benda á í afsökunarbeiðni sinni að fjölskylda Mastersons hafi beðið þau hjónin sérstaklega um meðmæli. Þá hafi það ekki verið ætlun þeirra að draga niðurstöðu kviðdómsins í málinu í efa. „[Bréfin] voru ætluð dómaranum og áttu ekki að grafa undan vitnisburði fórnarlambanna eða skaða þau á nokkurn hátt,“ sagði Kutcher í yfirlýsingunni. Hjónin hafa fengið yfir sig aðra holskeflu af gagnrýni fyrir afsökunarbeiðnina, sem mörgum þykir duga skammt. Því hefur verið fleygt að framkoma hjónanna sé vélræn og skorti alla einlægni. Frammistaðan sé raunar með ólíkindum, miðað við að þar fari tveir leikarar.
Hollywood Bandaríkin MeToo Mál Danny Masterson Tengdar fréttir „That 70s Show“ leikari dæmdur fyrir nauðgun Leikarinn Danny Masterson, sem er hvað þekktastur fyrir að leika í þáttunum That ’70s Show, sem nutu mikilla vinsælda um og eftir aldarmótin síðustu, hefur verið sakfelldur fyrir að nauðga tveimur konum. Kviðdómendur komust ekki að niðurstöðu varðandi þriðju nauðgunina sem hann var ákærður fyrir. 31. maí 2023 22:16 Dómari ógildir réttarhöldin yfir Masterson Dómari ógilti réttarhöld yfir leikaranum Danny Masterson í gær, þar sem kviðdómurinn gat ekki náð saman um niðurstöðu. Masterson var ákærður fyrir þrjár nauðganir og hefur notið stuðnings Vísindakirkjunnar í baráttu sinni gegn ásökununum. 1. desember 2022 07:35 Mest lesið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Lífið Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Lífið Sassy fagnar 5 ára afmæli og stórum kaflaskiptum Lífið samstarf Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Menning Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Menning Fleiri fréttir Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Sjá meira
„That 70s Show“ leikari dæmdur fyrir nauðgun Leikarinn Danny Masterson, sem er hvað þekktastur fyrir að leika í þáttunum That ’70s Show, sem nutu mikilla vinsælda um og eftir aldarmótin síðustu, hefur verið sakfelldur fyrir að nauðga tveimur konum. Kviðdómendur komust ekki að niðurstöðu varðandi þriðju nauðgunina sem hann var ákærður fyrir. 31. maí 2023 22:16
Dómari ógildir réttarhöldin yfir Masterson Dómari ógilti réttarhöld yfir leikaranum Danny Masterson í gær, þar sem kviðdómurinn gat ekki náð saman um niðurstöðu. Masterson var ákærður fyrir þrjár nauðganir og hefur notið stuðnings Vísindakirkjunnar í baráttu sinni gegn ásökununum. 1. desember 2022 07:35